Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Apple iPad 10,9" (2022) 256 GB Wi-Fi - Silfur

MPQ83
iPad 10,9" (2022) er með öflugum A14 Bionic örgjörva sem veitir þér skemmtun á ferðinni, hvar sem er. Horfðu á myndir á frábærum 10,9" Liquid Retina skjá með Apple Pencil stuðning og taktu upp myndbönd í 4K gæðum.
10,9" Liquid Retina skjár
A14 Bionic örgjörvi
256 GB
Wi-Fi
Touch ID
Styður Apple Pencil 1. kynslóð
129.995 kr.

Láttu mig vita

Skráðu þig inn til að fá tilkynningu þegar þessi vara er komin aftur á lager.

Upplýsingar

Stígðu heim skemmtunar hvar sem þú ert með iPad 10,9 (2022). Horfðu á uppáhalds myndefnið þitt eða teiknaðu fallegar myndir á stóra 10,9" Liquid Retina skjánum. Náðu í öll smáforritin sem þú þarft úr Apple Store og lærðu á ferðinni með Smart Keyboard stuðning. iPadOS 16 hjálpar þér að hámarka skilvirkni með áreynslulausri fjölverkavinnslu.

Örgjörvi
iPad er knúinn af sex kjarna Apple A14 Bionic örgjörvanum með tveimur hröðum kjörnum og fjórum skilvirkum sem veita þér kraftinn í fjölverkavinnslu eða afþreyingu. Hann er einnig með 16 kjarna Neural Engine fyrir bætta gervigreind.

Skjár
Horfðu á myndir í frábærum gæðum á 10,9" Liquid Retina skjánum með yfir 3,5 milljón pixlum. Skjárinn birtir fallega, líflega liti með True Tone tækni og allt að 500 nit birtustigi og stillir sig sjálfkrafa eftir umhverfisbirtu.

Myndavélar
Taktu fallegar myndir með 12 MP gleiðlinslumyndavélinni með f/1.8 ljósopi sem tekur nákvæmar myndir og myndbönd í allt að 4K 60 fps gæðum. Með 5x stafrænum aðdrætti, sjálfvirkum fókus, time-lapse, hægmyndum, víðmyndum og Smart HDR 3 fyrir fallega liti. Að framan er 12 MP gleiðlinsla með f/2.4 ljósopi sem sér 122° og nær öllum vinunum í eina mynd. Taktu upp myndbönd í 1080p með 60 römmum á sekúndu og njóttu hágæða myndstöðugleika. Í myndsímtölum heldur tryggir Center Stage að þú haldist alltaf í fókus.

Apple Pencil (1. kynslóð)
Með Apple Pencil (selt sér) geturðu leyft sköpunarhæfileikunum að flæða, allt frá glósum í að teikna listaverk. Skjárinn þekkir form og hjálpar þér að búa til fullkomin hring eða línur á fljótlegan hátt.

Í góðu sambandi
iPad er með Wi-Fi 6 sem veitir hraðara þráðlaust net og með Bluetooth 5.2 er einfalt mál að tengja spjaldtölvuna við önnur tæki og aukahluti þráðlaust.

Smart Keyboard
Breyttu spjaldtölvunni í fartölvu með Smart Keyboard (selt sér) með fljótari innslátt og þægilega fjarlægð milli lykla.

Touch ID
iPad er með innbyggðan fingrafaraskanna í afltakkanum sem er fljótari og öruggari en nokkru sinni fyrr á iPad.

iPadOS 16
iPadOS 16 aðstoðar þig við vinnu með bættri fjölverkavinnslu. Split View nýtir auka plássið á skjánum. Skrifaðu snjallar glósur og breyttu þeim i texta á augabragði. Dragðu og sendu skrár á milli smáforrita og afritaðu texta úr myndböndum og myndum. Hannaðu þinn eigin lásskjá með græjum sem gerir þér kleift að sjá helstu fréttir án þess að aflæsa skjánum.

Létt og nett
Með einungis 7 mm þykkt og 477 g þyngd sparar iPad bæði þyngd og pláss sem staðgengill stórra kennslubóka og stílabóka. Einnig er auðvelt að halda á henni með annarri hendi.

Aðrir eiginleikar
- Innbyggðir víðóma hátalarar
- Tveir hljóðnemar
- 28,6 WHr rafhlaða sem endist í allt að 10 klukkustunda notkun
- USB-C tengi fyrir hleðslu og gagnaflutning

Eiginleikar
Spjaldtölvur
Strikamerki
194253389538
Framleiðandi
Apple
SIM
Nano-SIM, eSIM
Litur
Silfur
Tæknilegar upplýsingar um rafhlöðu
28,6 Wh
Tegund rafhlöðu
Lithium-ion
Örgjörvi
Apple A14
Hraði örgjörva (GHz)
3
Fjöldi kjarna (Core)
6
Geymslurými (GB)
256
Stækkanlegt minni
Nei
Skjágerð
Retina
Skjástærð (″)
10,9
Upplausn í pixlum
1640 x 2360
Stýrikerfi
iPadOS
Útgáfa stýrikerfis
16.1
Innbyggðir hátalarar
Bluetooth
Bluetooth útgáfa
5.2
Þráðlaust netkort
Wi-Fi 6 (802.11ax)
USB-C tengi
Minniskortalesari
Nei
Tengi fyrir heyrnartól
Nei
Lightning
Nei
Bakmyndavél 1
12 MP, f/1.8, (wide), PDAF
Sjálfumyndavél 1
12 MP, f/2.4, 122˚ (ultrawide)
Stærð (HxBxD)
248,6 x 179,5 x 7 mm
Þyngd (g)
477
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður