Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Apple iPad Pro 12,9" (2022) 128 GB Wi-Fi - Grár

MNXP3
iPad Pro 12,9" er afkastameiri en nokkru sinni fyrr með Apple M2 örgjörvanum. Í samvinnu við Liquid Retina XDR skjáinn birtir iPad Pro frábær myndgæði.
12,9" Liquid Retina XDR skjár
Apple M2 örgjörvi
128 GB
Wi-Fi
Face ID, LiDAR
Styður Apple Pencil 2. kynslóð
229.995 kr.

Láttu mig vita

Skráðu þig inn til að fá tilkynningu þegar þessi vara er komin aftur á lager.

Upplýsingar

Með iPad Pro 12,9" 2022 geturðu látið ótrúlegustu hugmyndir verða að raunveruleika. Hvort sem þú ert arkítekt, verkfræðingur eða með sköpunargáfu geturðu látið ímyndunaraflið flæða með iPad Pro. Upplifðu frábær myndgæði með Liquid Retina XDR skjánum sem birtir myndir í réttum litum.

Skjár
12,9" Liquid Retina XDR skjárinn er með 1.000.000:1 birtuskil og birtir nákvæma liti. Með algrím sem reiknar bestu litina miðað við kringumstæður getur þú verið viss um að skjárinn birtir alltaf nákvæma og líflíka liti. iPar Pro 12,9" notar byltingarkennda Mini-LED tækni með 2.500 local dimming svæðum og styður P3 litróf sem mætir kröfum atvinnumanna. Skjárinn nær allt að 1600 nit birtustigi og styður fjölda HDR sniða. Með 120 Hz endurnýjunartíðninni nást mjúkar hreyfingar og Apple Pencil er hraður og nákvæmur.

Apple M2
Í þessari útgáfu af iPad Pro er sérhannaður Apple M2 örgjörvi með átta kjarna örgjörva og tíu kjarna skjástýringu. Hann er með Neural Engine og er sérstaklega afkastamikill með leifturhraða myndvinnslu og veitir þér aðgang að grípandi leikjaspilun. Með viftulausu hönnuninni færðu að njóta næðis og spjaldtölvan er með langa rafhlöðuendingu.

Myndavélar
Bakmyndavélarnar eru þrískiptar með 12 MP aðal linsu og 10 MP gleiðlinsu sem taka skarpar og skýrar myndir með allt að 125° sjónvídd. Taktu frábær myndbönd í allt að 4K uppskölun eða hægmyndir í Full HD. LiDAR neminn veitir þér aðgang að nýjum heim viðbótarveruleika og aðstoðar þig við að byggja þrívíddarmynd í herberginu heima í raunstærð.

Sjálfumyndavél
TrueDepth myndavélin er með 1080p Full HD myndbandsupptöku fyrir fjarfundi eða 12 MP sjálfur. Hún er með 122° gleiðlinsu svo fleiri geta tekið þátt í myndsímtalinu. Center Stage eiginleikinn færir sjónarhornið og aðlagar fókus eftir því hvar og hversu margir eru í mynd.

Face ID
Aflæstu iPad Pro eða samþykktu greiðslur á öruggan og fljótlegan hátt með andlitsgreiningartækni sem notar háþróaða Apple M2 Neural Engine. Persónuupplýsingar eru geymdar á dulkóðuðu öruggu formi og aðlagast að breytingum á andliti. Greiningin virkar um dag og að nóttu, hvort sem þú ert með farða eða yfirvaraskegg. Einnig er hægt að skemmta sér í myndsímtalinu með Animoji sem breytast eftir röddinni og andlitshreyfingum.

iPadOS 16
iPadOS 16 aðstoðar þig við vinnu með bættri fjölverkavinnslu. Split View nýtir auka plássið á skjánum. Skrifaðu snjallar glósur og breyttu þeim i texta á augabragði. Dragðu og sendu skrár á milli smáforrita og afritaðu texta úr myndböndum og myndum. Hannaðu þinn eigin lásskjá með græjum sem gerir þér kleift að sjá helstu fréttir án þess að aflæsa skjánum.

Aðrir eiginleikar
- USB-C 4 tengi með Thunderbolt3, DisplayPort og hleðslustuðning
- Wi-Fi 6E, Bluetooth 5.3
- Fjórir hátalarar
- True Tone flass
- Allt að 10 klukkustunda rafhlöðuending

Eiginleikar
Spjaldtölvur
Strikamerki
194253241379
Framleiðandi
Apple
Litur
Grár
Rafhlöðuending (klst)
10
Tæknilegar upplýsingar um rafhlöðu
40,88 Wh
Tegund rafhlöðu
Lithium-polymer
Rafhlaða (mAh)
10758
Örgjörvi
Apple M2
Fjöldi kjarna (Core)
8
Geymslurými (GB)
128
Vinnsluminni (GB)
8
Stækkanlegt minni
Nei
Skjágerð
Mini LED
Skjástærð (″)
12,9
Upplausn í pixlum
2048 x 2732
Stýrikerfi
iPadOS
Útgáfa stýrikerfis
16.1
Innbyggðir hátalarar
4
Bluetooth
Bluetooth útgáfa
5.3
Þráðlaust netkort
Wi-Fi 6e (802.11ax)
USB-C tengi
Minniskortalesari
Nei
Tengi fyrir heyrnartól
Nei
Lightning
Nei
Bakmyndavél 1
12 MP, f/1.8, (wide), 1/3", 1.22µm, dual pixel PDAF
Bakmyndavél 2
10 MP, f/2.4, 125˚ (ultrawide)
Bakmyndavél 3
TOF 3D LiDAR scanner (depth)
Sjálfumyndavél 1
12 MP, f/2.4, 122˚ (ultrawide)
Stærð (HxBxD)
280,6 x 214,9 x 6,4 mm
Þyngd (g)
682
Hljóðnemi
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður