Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Apple iPhone SE 64 GB snjallsími - Rauður
iPhone SE snjallsími í fullkominni vasastærð úr gleri og áli. Síminn er með 4,7" Retina HD snertiskjá og 12 MP bakmyndavél með fjölbreyttum stillingum og LED True Tone flassi. Öflugur A13 Bionic örgjörvi tryggir hraða keyrslu snjallforrita og kröfuharðra leikja.
Vatns- og Rykvörn
Síminn er IP67 sem þýðir að hann er rykvarinn og þolir að fara niður á 1 metra dýpi í 30 mín.
(Athugið að vatnstjón falla þó ekki undir ábyrgð og mælum við sterklega með því að fara varlega með símann nálægt vatni og passa að nota ekki símann í sturtu, baði, sundi eða neðansjávar. IP67 þolprófið er framkvæmt á rannsóknarstofu þar sem síminn er í hvíldarstöðu á 1 metra dýpi í hreinu vatni í 30 mín, allt aðrar aðstæður geta myndast í sturtu þar sem meiri þrýstingur er á vatninu, sundlaugar eru fullar af efnum til að hreinsa vatnið og sjórinn er fullur af salti.) Frekari upplýsingar ásamt góðum leiðbeiningum um hvernig best er að þurrka símann má svo finna á heimasíðu Apple, eða hérna: https://support.apple.com/en-us/HT207043
Retina HD snertiskjár
iPhone SE er sérhannaður fyrir þá sem vilja létta og netta síma sem passa í auðveldlega í vasa. Síminn er með 4,7" Retina HD snertiskjá með 1334 x 750p upplausn og True Tone tækni sem stillir hvíta litinn í skjánum til að fá sem skýrustu mynd þrátt fyrir mikla eða litla birtu. Auk þess er síminn með eitthvað sem Apple kallar Haptic Touch, sem þýðir að hann gefur frá sér vægan titring þegar ýtt er á skjáinn eins og um venjulegan takka væri að ræða.
Myndavél
12MP myndavél með f / 1.8 ljósop er staðsett aftan á símanum við hliðin á LED True Tone flassins. Myndavélin er einnig með 5x stafrænan aðdrátt og fleiri fjölbreyttar stillingar. Sérstakur Portrait eiginleiki framkallar svokölluð 'bokeh' áhrif þar sem hægt er að gera bakgrunninn á myndunum óskýran eftir þörfum bæði fyrir og eftir að myndin hefur verið tekin. Annar frábær eiginleiki er Portrait Lightning sem býður upp á 6 sérstök ljósmyndaáhrif sem atvinnuljósmyndarar þekkja vel. Viltu taka upp myndbönd? Með QuickTake þarftu einungis að halda upptökutakkanum niðri til að skipta á milli myndatöku og myndbandsupptöku í 4K gæðum með Stereo Sound. Að framan er iPhone SE með 7 MP myndavél með f / 2.2 ljósop.
Örgjörvi og geymslupláss
Öflugur Apple A13 Bionic örgjörvi er hannaður til þess að geta keyrt þung forrit og leiki án þess að eyða mikilli orku. Síminn er með 64GB geymslupláss þar sem hægt er að geyma fjöldan allan af ljósmyndum, myndböndum, tónlist og fleira.
iOS 13
Apple er komið með nýjustu útgáfuna af iOS 13. Stýrikerfið er hannað til að vera notendavænt og með Næturstillingu (Dark Mode), ljósmyndasnjallforrit og enn betra öryggi. Þú getur einnig skemmt þér með Memoji og búið til þína eigin broskalla.
Touch ID
iPhone SE er einnig með Touch ID, fingrafaralesari sem er innbyggður í Home takkann. Hægt er að nota þessa tækni til þess að aflæsa símanum eða borga með Apple Pay.
Vatns- og rykvörn
Síminn er með IP67 vottun sem kemur í veg fyrir að ryk fari inn í síman auk þess sem hann þolir allt að 1m vatnsdýpi í allt að 30 mínútur.
Aðrir eiginleikar
- Dual SIM (nano-SIM og e-SIM)
- VoLTE fyrir 4G símtöl, VoWi-Fi fyrir WiFi símtöl
- WiFi 6 (802.11ax)
- GPS og GLONASS staðsetningartæki
- Bluetooth 5.0
- NFC fyrir þráðlausar greiðslur
- Stuðningur fyrir þráðlausa hleðslu
Innifalið í pakkningu
- iPhone SE
- Lightning í USB-C snúra
- Leiðbeiningar