Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Apple Mac mini M2 8/512 GB smátölva
Láttu mig vita
Skráðu þig inn til að fá tilkynningu þegar þessi vara er komin aftur á lager.
Handhæg en öflug, Mac mini M2 smátölvan er tilbúin í allar áskoranir. Hún er með Apple M2 SoC með átta kjarna örgjörva byggðum á 5 nm ferli, tveimur Thunderbolt/USB 4 tengjum sem styðja allt að 6K myndstreymi og 40 Gbps gagnahraða. Mac mini veitir ótrulega frammistöðu í klassísku, stílhreinu hönnuninni.
Apple M2 örgjörvi
Þessi tölva er með sérhönnuðum M2 SoC (System on a Chip) frá Apple með átta kjarna fyrir vinnslu og tíu kjarna fyrir skjástýringu. Örgjörvinn er byggður á 5 nm hönnun og er með yfir 20 milljarða smára sem auka afköst en nota minni orku. Ennfremur er M2 með Neural Engine og 8 GB deilt minni svo svo allt vinni hraðar og forrit geta deilt gögnum hraðar með Neural Engine, skjástýringunni og örgjörvanum. Undirbúðu þig fyrir hraða myndvinnslu og leiki.
Thunderbolt/USB 4.0
Mac mini er með tvö fjölhæf USB-C Thunderbolt tengi með allt að 40 Gbps gagnahraða sem styðja alls kyns tæki. Tengin styðja DisplayPort myndstreymi og geta knúið allt að tvo skjái samtímis, einn í allt að 6K upplausn við 60Hz og annan í 5K upplausn við 60Hz.
Geymslupláss
Geymdu mikilvæg gögn, myndir og myndbönd á hraða 512 GB SSD drifi Mac mini tölvunnar sem tryggir að stýrikerfi og forrit ræsi hratt.
HDMI
Innbyggða HDMI tengingin gerir þér kleift að tengja Mac mini tölvuna við fjölda skjáa, sjónvarpa og jafnvel skjávarpa. HDMI tengið styður allt að 4K upplausn við 60Hz.
macOS
macOS Ventura er með fjölda endurbóta sem bæta daglegt líf og veita enn betri notendaupplifun. Uppfærslan bætir mynd og myndbandaleit með Spotlight, öruggari lykilorð með Passkeys og Stage Manager sem bætir viðmót glugga og forrita ásamt Continuity sem bætir myndsímtöl þegar tölvan er pöruð við iPhone.
Aðrir eiginleikar
- 2x Thunderbolt 4/USB 4 (með DisplayPort stuðning)
- 2x USB-A tengi
- 1x HDMI
- Gigabit Ethernet tengi
- WiFi 6E (802.11ax)
- Bluetooth 5.3
- Innbyggður hátalari
- 3,5 mm heyrnartólatengi