Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Apple TV 4K 2022 128 GB WiFi+Ethernet

MN893
Apple TV 4K færir myndefnið á næsta stig. 4K upplausnin birtir nákvæmar og fallegar myndir með lifandi litum þökk sé HDR tækninnar. Endurhannaða Siri Remote gerir stjórnun enn þægilegri.
4K upplausn
128 GB minni
Siri USB-C fjarstýring
HDR10+, A15 Bionic örgjörvi
Litstilling með iPhone
Audio Sharing
34.995 kr.
Upplýsingar

Apple TV 4K fer fram úr væntingum venjulegs streymibúnaðs með 4K HDR myndgæðum. Það er tilbúið að vinna með iPhone símanum þínum til að litstilla mynd svo þú fáir frábær myndgæði. Stjórnaðu efni auðveldlega með Siri fjarstýringunni, spilaðu leiki eða hugsaðu um heilsuna með Apple Fitness+.

4K/UHD upplausn
4K/UHD upplausn (3840x2160pix) þýðir fjórum sinnum fleiri pixlar en í Full HD sjónvarpi (1920x1080) auk UHD uppskölunar á Full HD eða HD Ready efni. Upplausn segir til um hve margir pixlar komast fyrir í mynd. Einn pixill sýnir einn lit hverju sinni og saman verður til mynd. Með fleiri pixlum eykst gæði myndarinnar og smáatriði verða greinilegri.

HDR10+ (High Dynamic Range)
HDR tækni tryggir að dekkri hlutar myndarinnar verði enn dekkri og bjartari hlutarnir bjartari. Þú færð því skarpari mynd og meiri litbrigði.

A15 Bionic örgjörvi
Til að bæta frammistöðu og minnka líkur á hiksti eða töfum er Apple TV 4K með afkastamiklum A15 örgjörva sem færir frammistöðuna á ný stig. Fjórir skilvirkir kjarnar vinna saman með tveimur afkastamiklum kjörnum fyrir enn betri upplifun.

App Store
Náðu í heilan heim skemmtunar með streymisveitum eins og Netflix, Hulu, HBO Now eða iTunes og horfðu á myndir, sjónvarp eða íþróttaefni í rauntíma, ásamt nýjustu fréttum og veðri. Einnig er hægt að tengja MFI leikjafjarstýringar eða aðra Bluetooth aukahluti og spila tölvuleiki í góðum gæðum.

Siri Remote
Uppfærða Siri fjarstýringin gerir þér kleift að stjórna Apple TV 4K á auðveldan máta. Með Bluetooth 5.0 tengingu og IR þarftu ekki lengur að beina fjarstýringunni beint að Apple TV 4K, svo þú getur stjórnað sjónvarpinu og græjunum hvar sem er í herberginu. Fjarstýringin er einnig með innbyggðan hröðunar- og hallamæli fyrir leiki. Ofan á allt það, geturu leyft Siri að aðstoða þig með einum smelli.

Tengimöguleikar
- HDMI 2.1
- Dual band WiFi-ax með MIMO
- Gigabit Ethernet
- Bluetooth 5.0
- IR móttakari

Í kassanum
- Apple TV 4K
- Siri Remote
- Rafmagnssnúra
- Lightning í USB snúra
- Leiðbeiningar

Eiginleikar
Almennt
Strikamerki
0194253097334
Framleiðandi
Apple
Litur
Svartur
Fylgihlutir í kassa
Siri fjarstýring, rafmagnssnúra
Stærð (HxBxD)
3,1 x 9,3 x 9,3 cm
Þyngd (g)
214
Greiðsludreifing
6 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 6 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður