Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Audio-Technica LP120X plötuspilari - Svartur
ATLP120XUSBBKUppselt





Audio-Technica LP120X plötuspilari - Svartur
ATLP120XUSBBKLáttu mig vita
Skráðu þig inn til að fá tilkynningu þegar þessi vara er komin aftur á lager.

Audio-Technica LP120X plötuspilari
Mótordrifinn plötuspilari
AT-LP120X er handstýrður, mótordrifinn plötuspilari sem er hannaður til að framkalla hámarks hljómgæði frá vínylplötum. Tveggja hraðastillinga (33-1/3 og 45 RPM) plötuspilari með stíl hreinum matt svörtum ál toppi sem dregur úr ómun óþarfa hljóms.
Gæða íhlutir
Plötuspilarinn er með S-laga arm með stillanlegum þrýstingi og létta AT-HS6 altæka 1/2"-festinga skel með AT-VM95E tvísegla phono hljóðdós. Audio-Technica hefur verið markaðsleiðandi í hönnun og framleiðslu á hljóðdósum í meira en 60 ár og sú sérþekking sem fyrirtækið hefur öðlast yfir þann tíma skín í gegn með AT-VM95E hljóðdósinni. 0,3 x 0,7 mm nál er í hljóðdósinni og hún styður allar VM95 seríu nálar.
USB upptaka
Tengdu plötuspilarann við tölvu og taktu upp plöturnar þínar. Þannig er hægt að eiga plöturnar til í stafrænu formi.
Innbyggður formagnari
AT-LP120X er með innbyggðum phono formagnara og tvöfaldri RCA tengingu og snúru sem veitir beina tengingu við plötuspilarann með eða án tengingu við formagnarann eftir þörf.
Yfir 60 ár af hliðrænni fullkomnun
Audio-Technica hóf störf í Tókýó árið 1962 við hönnun og framleiðslu á hágæða hljóðdósum. Meira en hálf öld af sérþekkingu í hliðrænni hljóðtækni skilar sér í framleiðslu allra plötuspilara frá Audio-Technica til að tryggja notendum góða upplifun af plötuspilurunum en aðallega til að veita frábæra upplifun af tónlistinni þinni.