Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Beko spanhelluborð HII64206F2MT
HII64206F2MTTækifæri





– 21%
Beko spanhelluborð HII64206F2MT
HII64206F2MT
Beko spanhelluborð HII64206F2MT
Beko spanhelluborðið gefur þér skilvirka eldunarupplifun með fjórum spanhellum sem hver hefur hraðhitun ásamt því að þær eru allar stækkanlegar fyrir tvær stærri hellur. Stafræni skjárinn gerir þér kleift að stjórna undirbúningnum með einfaldri snertistýringu og einnig er hægt að velja á milli níu aflstiga. Nýttu þér snjalleiginleika eins og Anti-Overflow og sjálfvirkan slökkvara.
Spanhelluborð
Spanhellan notar rafmagns leiðni til þess að hita í stað hefbundinna aðferða. Botninn á pönnunni/pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu. Þetta sparar bæði orkunotkun og minnkar hitatap við eldun.
FlexiZone
Hægt er að sameina allar hellurnar til að mynda tvær stórar ef þörf er á stærra hellusvæði.
Tímastillir
Fyrir hvert svæði er tímamælir sem slekkur sjálfkrafa á svæðinu þegar valinn tími er liðinn.
Booster á öllum hellum
Á annasömum degi þar sem þú vilt ná hraðri eldamennsku er hægt að nota booster á öllum hellum sem flýtir fyrir upphitun á helluborðinu.
Barnalæsing
Öryggi er alltaf í fyrirrúmi þegar þú ert með börn í húsinu. Þess vegna er helluborðið með barnalæsingu þannig að þú kemur í veg fyrir að börn kveiki á því eða breyti stillingunum.
Helluborðið
Ath að ekki er hægt að nota alla potta og pönnur, þær þurfa að vera úr segulvirkum málmi eins og ryðfríu stáli. Auðvelt að athuga þetta með því að setja segul á botninn og athuga hvort hann helst, ef svo er þá er það áhaldið sem þú getur notað.
Athugið! Með flestum helluborðum fylgir ekki kló þar sem rafmagnstengi eru mismunandi eftir heimilum. Í einstaka tilfellum fylgir engin snúra og þarf því að hafa samband við fagaðila.