Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Bosch spanhelluborð PXY875DC5Z
Bosch spanhelluborð með PerfectFry skynjara auk PowerBoost og PanBoost eiginleika. Helluborðið er einnit með QuickStart og ReStart eiginleika sem spara tíma auk FlexInduction svæði sem stækkar/sameinar hellur svo hægt sé að elda með stærri gerðir af pottum og pönnum.
Spanhelluborð
Spanhellan notar rafmagnsleiðni til þess að hita í stað hefbundinna aðferða. Botninn á pönnunni/pottinum er það eina sem hitnar á meðan hellan sjálf helst köld viðkomu. Þetta sparar bæði orkunotkun og minnkar hitatap við eldun.
DirectSelect
Sérstaklega þægileg stýring þar sem þú getur valið strax viðeigandi hitastig. Þarft ekki að ýta á plús eða mínus takka aftur og aftur, hoppaðu beint úr 1 í 9 með einni snertingu.
PerfectFry skynjari
Skynjari með 5 hitastillingum sem viðheldur hitastiginu svo maturinn eldast jafnt og vel.
QuickStart
QuickStart eiginleikinn nemur hvar panna er á helluborðinu og þarf þá einungis að velja hitastigið til að byrja að elda.
PowerBoost
Sparaðu tíman við eldamennskuna. Allar hellur á helluborðinu eru með PowerBoost sem hitar matinn á augnabliki.
PanBoost
Eldaði matinn hraðar en verndaðu pottinn/pönnuna í leiðinni. Þessi stilling heldur hámarkshita í stuttan tíma svo pottar og pönnur skemmast ekki með tímanum.
ReStart stilling
Haltu niðri takkanum í 4 sekúndur og hellan fer sjálfkrafa í þá stillingu sem hún var í síðast. Hentar vel þegar sömu réttir eru eldaðir aftur.
Heldur matnum heitum
Allar hellur hafa þann eiginleika að halda matnum heitum.
FlexInduction svæði
Hægt er að stækka tvær hellur ef þörf er á stærra svæði fyrir stærri tegundir af pottum og pönnum.
Tímastilling
Hvert svæði er með tímastilli sem sjálfkrafa slekkur á hellunni þegar tíminn er liðinn.
Barnalæsing
Öryggið er mikilvægast, sérstaklega með börn í húsinu. Því er þetta spanhelluborð með barnálás sem þú getur virkjað og komið í veg fyrir að börn eða kveiki á eða breyti stillingum á helluborðinu.
Pottar og pönnur
Ekki er hægt að nota alla potta og pönnur, þær þurfa að vera úr segulvirkum málmi eins og ryðfríu stáli. Auðvelt að athuga þetta með því að setja segul á botninn og athuga hvort hann helst, ef svo er þá er það áhaldið sem þú getur notað
Athugið! Með flestum helluborðum fylgir ekki kló þar sem rafmagnstengi eru mismunandi eftir heimilum. Í einstaka tilfellum fylgir engin snúra og þarf því að hafa samband við fagaðila.