Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Braun Silk-expert Pro 5 háreyðingartæki
Fjarlægðu hár á auðveldan máta með Braun Silk-expert Pro 5 PL5242 háreyðingartækinu. Tækið veitir þér snögga, örugga og öfluga lausn við óæskilegum hárum og veitir þér fagmannlega útkomu án þess að þú þurfir að yfirgefa heimilið þitt. Silk-expert Pro 5 er hannað til að veita þér mjúka húð til langs tíma með sjáanlegar niðurstöður aðeins á nokkrum vikum.
SensoAdapt húðskynjari
Tækið er útbúið SkinPro 2.0 skynjara, einnig þekkt sem SensoAdapt sem greinir sjálfkrafa húðlitinn þinn á nákvæman hátt og aðlagar ljósið til þess að ná bestu mögulegu niðurstöðu á virkni og þægindum.
IPL tækni
IPL tækni Braun veitir tækinu möguleika á að púlsa allt að 125 sinnum á mínútu. Þetta tryggir örugga meðhöndlun, styttir tímann sem meðferð tekur og kemur í veg fyrir að svæði gleymast.
Viðkvæmar stillingar
Tækið býður upp á tvær viðkvæmar stillingar sem draga úr styrkleika ljóssins, þar sem að sum svæði líkamans eru viðkvæmari en önnur. Þessar stillingar eru fullkomnar fyrir bikini línuna eða handakrikana, svo að meðferðin er þægilegri án þess að fórna virkni.
Fylgihlutir
Tækið kemur með fylgihlutum sem geta verið notaðir til að fá sem bestar niðurstöður á mismunandi hlutum líkamans. Víði hausinn virkar vel fyrir stór svæði eins og fætur og læri, á meðan að mjói hausinn virkar best fyrir minni svæði og þau sem er erfitt að ná til. Pakkningin inniheldur líka Venus Extra Smooth rakvél til að stytta hárið fyrir ljósameðferðina og svört taska til að geyma tækið og fylgihlutina.
Mjúk húð til langs tíma
Þegar þú fylgir meðferðinni sem mælt er með í leiðbeiningunum getur þú náð allt að einu ári af mjúkri húð. Niðurstöður eru sjáanlegar eftir aðeins þrjár vikur svo að þú getir hugsað minna um óæskileg hár og meira um að njóta mjúkrar húðar þinnar.
Í kassanum:
- Braun Silk-expert Pro 5
- Víður haus
- Mjór haus
- Venus Extra Smooth rakvél
- Svört taska