Canon CanoScan Lide 400 skanni
92655



Canon CanoScan Lide 400 skanni
92655CanoScan LiDe 400 skanni frá Canon sem er einfaldur í notkun fyrir hvaða heimili sem er. Hægt er að stjórna skannanum í gegnum tölvu með USB-C tengi eða með því að nota takkana á skannanum sjálfum. Ekki er þörf á rafmagnssnúru þar sem skanninn notar USB-C tengið fyrir rafmagn. Til að minnka pláss á borðinu þá er hægt að geyma skannan uppréttan með festingum sem fylgja.
Áreiðanleg skönnun
Auto Scan eiginleikinn býr til margra blaðsíðna PDF-skjal. Einnig er hægt að bæta gæði skönnunar með Auto Document og Photo Fix stillingunum. Skanninn er snöggur og skannar 1 A4 blaðsíðu á aðeins 8 sekúndum. Pixma Cloud Link snjallsímaforritið sendir svo skannað efni beint í Skýjið.
Háþróuð Z-Lid tækni
Innbyggð tækni sem tryggir að krumpuð blöð eða hlutir sem eru ekki alveg flatir séu skannaðir inn í góðum gæðum.
Aðrir eiginleikar
- Hámarks upplausn: 4800 x 4800 dpi
- CIS skynjari
- 48-bit lita stuðningur
- Reversible USB-C 3.0 tengi