Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Dyson V15 Detect Absolute skaftryksuga
DYS39445101ELKO mælir með






Dyson V15 Detect Absolute skaftryksuga
DYS39445101
Dyson V15 Detect Absolute skaftryksuga
Dyson V15 Detect Absolute þráðlausa skaftryksugan er útbúin fjölþrepa síunarkerfi, Piezo skynjara, þremur kraftstillingum, LCD skjá og allt að 60 mínútna rafhlöðuendingu.
Öflug rafhlaða
Öflug lithium-ion rafhlaða er með 60 mínútna rafhlöðuendingu sem er meira en nóg til að ryksuga flest heimili. Auðvelt er að fjarlægja rafhlöðuna með því að ýta á einn takka.
Stillingar
Veldu á milli þriggja kraftstillinga eftir því hvaða yfirborð og óhreinindi eru til staðar. Auto stillingin veitir gott jafnvægi krafts og rafhlöðuendingar á meðan Eco stillingin endist lengur. Boost mode er fullkomið fyrir stutt og erfið þrif.
Skilvirk sía
Dyson þráðlausa skaftryksugan er með einangruðu síukerfi sem grípur allt að 99,9% ryks og ofnæmisvalda niður í 0,3 micron stærð.
Piezo skynjari
Skaftryksugan er með Piezo skynjara sem er stöðugt að telja ryk agnir og stillir sogkraftinn í samræmi við það.
Ljós
Dyson V15 er með vel staðsettu grænu ljósi sem lýsir ryk og hjálpar þér að ná öllum óhreinindum.
Hannað til að ná dýrahárum
Skaftryksugan og aukahlutirnir eru hannaðir til þess að komast að og hreinsa alla staði sem gæludýr geta komist á.
LCD skjár
Hentugur LCD skjár gefur þér frábæra yfirsýn yfir endingu rafhlöunnar, stillingar og afköst. Skjárinn sýnir þér upplýsingar í rauntíma.