Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snúrur og rafmagn

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Garmin Fenix 8 47mm AMOLED Sapphire - Appelsínugult

0100290411
Náðu markmiðum þínum með Garmin Fenix 8. Snjallúrið er hlaðið eiginleikum eins og æfingarforrit fyrir alls kyns íþróttir, LED vasaljós, Garmin Pay og 24/7 heilsumæli. Sjáðu tilkynningar úr snjallsímanum á 1,4" AMOLED skjánum.
Bluetooth, Wi-Fi, GPS
Allt að 16 daga rafhlöðuending
LED vasaljós
Garmin Pay, tónlist
10 ATM vatnsvörn
32 GB minni
194.995 kr.
Upplýsingar

Garmin Fenix 8 Sapphire snjallúrið er með 24/7 heilsu- og hreyfimæli með sérstilltum æfingum og fleiru. Auðvelt er að stjórna úrinu með tökkum og notendavænu viðmóti, þöktu endingargóðu og rispuvörnu gleri. Úrið hefur staðist Bandaríska herstaðla fyrir hita, höggum og vatnsvörn.

Íþróttir
Hægt er að búa til sinn eigin persónulega aðgang fyrir hverja íþrótt fyrir sig eða blanda mörgum saman. Fenix 8 reiknar allt frá hnébeygjum til sunds, tekur upp tíma, fjarlægð og heldur utan um allar upplýsingar sem hægt er að senda beint í Garmin Connect snjallsímaforritið. Úrið er með yfirlit yfir fjöldan allan af íþróttum og hreyfingu, sundi, fallhlífarstökki, golfi, hlaupi, lyftingum, klifri, hjóli og mörgu öðru. 10ATM vörn tryggir að óhætt sé að taka það með í sund eða í sturtu, einnig þolir úrið að fara niður á 40 metra dýpi við köfun.

Mælingar
Með 3ja ása stafrænum áttavita og hæðarmæli, mælir úrið af nákvæmni staðsetningu með hjálp GPS. Úrið nemur hvort verið sé að fara niður eða upp brekkur og fylgist einnig með loftþrýsting, vegna veðurbreytinga.

GPS eiginleikar
Innbyggt GPS, GLONASS, QZSS, BeiDou og GALILEO staðsetningar eiginleikar eru í úrinu. Ef stillt er á æfingu sem krefst GPS eiginleika þá virkjast hann einungis í þann tíma sem að æfingin endist sem sparar rafhlöðuna. Með Sapphire útgáfunni færðu enn nákvæmari staðsetningartækni. Fáðu aðgang að mörgum gervihnattatíðnum á stöðum sem GNSS merki nást ekki. Með SatIQ™ velur úrið sjálfkrafa hvaða GPS kerfi það notar til að ná hámarks rafhlöðuendingu.

Tónlist
Innbyggður 32GB MP3 spilari er í úrinu með Spotify, Amazon Music og YouTube Music tengimöguleika. Hægt er að tengja heyrnatól með Bluetooth beint við úrið og hlusta á tónlist án þess að þurfa að taka símann með.

Garmin Pay
Hægt er að greiða með snertilausum greiðslum með úrinu með því að nota NFC stillinguna.

LED vasaljós 
Úrið er með innbyggt vasaljós sem hægt er að setja á blikkstillingu til að auka sýnileika þegar farið er út að hlaupa á kvöldin eða í skammdeginu.

Tilkynningar
Hægt er að lesa tilkynningar, tölvupósta eða skilaboð beint af úrinu hvort sem verið sé að æfa eða ekki. Með því að deila framförum með vinum og öðrum er hægt að kynnast fólki með sömu áhugamál og einnig efla keppniskapið.

Rafhlaða 
Allt að 16 daga rafhlöðuending sem snjallúr og 6 daga ending með kveikt á always-on. Rafhlaðan endist í allt að 42 klukkustundir með kveikt á GPS og 30 klukkustundir með kveikt á always-on.

Eiginleikar
Snjallúr
Strikamerki
753759338084
Framleiðandi
Garmin
Módel
Fenix 8 Sapphire
Litur
Appelsínugulur
Rafhlöðuending
Allt að 16 dagar, 42 klst með GPS á
Geymslurými (GB)
32
Skjágerð
AMOLED
Skjástærð (″)
1,4
Skjástærð BxH í mm
35,56
Bluetooth
Staðsetningartækni
GPS,GLONASS,Beidou,Galileo,QZSS
Púlsmælir þráðlaus
Vatnsvörn
10 ATM
Stærð (HxBxD)
47 x 47 x 13,8
Þyngd (g)
80
Snertiskjár
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður