Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snúrur og rafmagn

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Garmin Forerunner 165 Music - Svart

0100286330
Forerunner 165 er öflugt snjallúr fyrir krefjandi æfingar. Það er útbúið flottum 1,2" AMOLED skjá, púls og súrefnismæli ásamt 25+ innbyggðum æfingaforritum. Með Bluetooth tengimöguleika getur þú séð tilkynningar og skilaboð ásamt því að stjórna tónlistinni án þess að taka símann úr vasanum. Þessi útgáfa er útbúin 4 GB af geymslurými fyrir tónlist sem geymir rúmlega 500 lög.
Bluetooth, Wi-Fi, GPS
Allt að 11 daga rafhlöðuending
Púls,-svefn, streitumælir o.fl.
Garmin Pay
50m vatnshelt
AMOLED skjár
57.995 kr.
Upplýsingar

Garmin Forerunner 165 Music snjallúrið er með öflugan 1,2" AMOLED snertiskjá, tilvalinn fyrir æfingar úti í sólinni. Úrið er með fjölda æfinga- og þjálfunareiginleika, þar á meðal 5 ATM vatnsvörn, hjartsláttar og súrefnismæli ásamt velferðareiginleikum sem hjálpa þér að fylgjast með heilsunni. Með Bluetooth tengimöguleika getur þú auðveldlega séð tillkynningar, símtöl og tónlist á úlnliðnum og með Garmin Pay getur þú borgað þráðlaust án þess að taka símann úr vasanum. Ólin hentar úlnliðum með 126 til 203 mm ummáli.

Music
Skildu símann eftir heima en hlustaðu jafnframt á tónlist með Music útgáfunni. Með 4 GB geymslurými getur úrið geymt rúmlega 500 lög í einu.

Æfingar
Þetta snjallúr frá Garmin er með allskonar hentuga eiginleika fyrir þá sem vilja mikla hreyfingu. Úrið geymir upplýsingar um allar helstu líkamsræktaræfingar og tæki s.s. að hlaupa, hjóla, hlaupabretti, skíðatæki, þol, yoga og margt annað. Einnig er hægt að synda með úrið og taka það með í sturtu. Með Body Battery Monitor getur þú fylgst með orku líkamans og vitað hvenær þú ert tilbúinn í æfingu. Garmin býður upp á Garmin Coach snjallforrit sem hefur að geyma forstilltar æfingaáætlanir, s.s. fyrir þol, yoga, styrk, pilates og aðrar þolmiklar þrepæfingar. Hægt er að búa til sínar eigin æfingaráætlanir.

AMOLED skjár
Forerunner 165 Music snjallúrið er með stórum 1,2" AMOLED skjá sem auðvelt er að sjá, jafnvel í beinu sólarljósi. Notaðu snertiskjáinn eða takkana til að stýra úrinu.

Staðsetningarkerfi
Forerunner 165 Music er með innbyggða GPS, GLONASS og Galileo tækni sem mælir fjarlægð og hraða með mikilli nákvæmni, innan sem utandyra. Úrið lætur vita ef setið er meir en klukkutíma.

Velferðareiginleikar
Úrið er með marga eiginleika sem gera þér kleift að sjá og fylgjast með heilsunni. Fylgstu með svefni og stressi eða fáðu tilkynnningar um lúr með Nap Detection. Úrið er líka með morgunskýrslu, heilsumæli fyrir konur, þotuþreytu ráðgjafa og hugleiðslueiginleika.

Vertu í sambandi
Hvort sem þú ert í vinnunni eða í ræktinni tryggir úrið að þú sért alltaf í sambandi, hvar og hvenær sem er. Úrið lætur vita ef þú færð skilaboð og sýnir þau beint á skjánum á úrinu.

Garmin Pay
Skildu veskið eftir heima og notaðu úrið til þess að borga hvar sem er.

Rafhlaða
Úrið er með allt að 11 daga rafhlöðuendingu í hefbundinni notkun (án GPS) en allt að 21 klst rafhlöðuendingu með GPS.

Í kassanum
- Snjallúr
- Snúra fyrir hleðslu og gagnaflutning

Eiginleikar
Snjallúr
Strikamerki
753759326616
Framleiðandi
Garmin
Tegund rafhlöðu
Lithium-ion
Rafhlöðuending
Allt að 11 dagar
Skjágerð
AMOLED
Skjástærð (″)
1,2
Bluetooth
Staðsetningartækni
GPS,GLONASS,Galileo
Vatnsvörn
5 ATM
Þyngd (g)
39
Snertiskjár
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður