Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Garmin GPS DriveSmart 76 leiðsögutæki - MT-S Evrópa/N-Ameríka
0100247041







Garmin GPS DriveSmart 76 leiðsögutæki - MT-S Evrópa/N-Ameríka
0100247041
Garmin GPS DriveSmart 76 leiðsögutæki - MT-S Evrópa/N-Ameríka
Fyrir ævintýragjarna er Garmin DriveSmart 76 fullkomni ferðafélaginn. Notendavænt viðmót og auðlesanleg kort, Garmin DriveSmart 76 vísar þér veginn beygju fyrir beygju með björtum 7" snertiskjá. Live Traffic með Garmin Drive appinu gefur þér upplýsingar og viðvaranir í rauntíma sem stuðlar að þægilegri og öruggari ferð.
Keyrðu framhjá umferðarteppum
Komdu í veg fyrir vesen með Live Traffic. Hvort sem það er umferðarteppa, slysavettvangur eða vegavinna/byggingasvæði, Live Traffic finnur betri leiðina fyrir þinn áfangastað.
Raddstýring
Segðu „OK, Garmin“ og raddstýringin er komin í gang. Þá þarftu bara að segja til hvert leiðinni er haldið og Garmin DriveSmart 76 vísar veginn.
TripAdvisor upplýsingar
Skoðaðu hótel, veitingastaði og aðra eftirsóknarverða staði í kringum þig og áfangastaðinn þinn með einkunnagjöf frá TripAdvisor.
WiFi uppfærslur
Nú er einfalt að halda öllum kortum og hugbúnaði uppfærðum með innbyggðri WiFi tengingu. Þannig getur þú uppfært Garmin DriveSmart 76 tækið þitt án þess að nota tölvu.
Bluetooth tenging
Tengdu Garmin DriveSmart 76 við snjallsíma og notaðu GPS tækið sem handfrjálsan búnað í gegnum Bluetooth tengingu.
Rauntíma upplýsingar
Með tengingu við snjallsíma getur þú nýtt þér Garmin Drive™ app. Með appinu færðu rauntíma upplýsingar um bílastæði, öryggismyndavélar, umferð og veðráttu. Einnig er þægilegra að taka við skilaboðum og tilkynningum úr símanum þar sem Garmin DriveSmart 76 sýnir þær á skjánum sínum.
Veitingastaðir og verslanir með FourSquare
Gagnabanki FourSquare er innbyggður í tækinu sem auðveldar þér að finna bestu veitingastaðina og verslanirnar nálægt þér.
Umferða- og vegatilkynningar
Til að stuðla að öryggi bifreiðarinnar lætur Garmin DriveSmart 76 vita af kröppum beygjum, hámarkshraðabreytingum, hraðamyndavélum og mörgu fleira.
Skýr kort
Einföld og auðlesanleg kort sýna 3D byggingar og land sem eykur skilning þinn á umhverfi þínu.
Virkar með Garmin BC40 þráðlausri bakkmyndavél
Hægt er að para saman bakkmyndavél BC40 frá Garmin (seld sér) með Garmin DriveSmart 76 fyrir aukið öryggi. Þá getur þú auðveldlega séð á skjánum á GPS tækinu ef að aðrir bílar, vegfarendur eða aðskotahlutir eru fyrir vegi þínum.