Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Garmin Venu 3S snjallúr - Ivory / Gyllt

0100278504
Garmin Venu 3S snjallúrið er með öflugan 1,2" AMOLED skjá, púls og súrefnismæli ásamt æfingaeiginleika, þar á meðal hjólastólaham. Með Bluetooth tengimöguleika getur þú séð tilkynningar og skilaboð ásamt því að stjórna tónlistinni án þess að taka símann úr vasanum.
GPS, Bluetooth
Allt að 10 daga rafhlöðuending
Púls- og súrefnismælir
Garmin Pay
5 ATM vatnsvörn
AMOLED skjár
84.995 kr.
Upplýsingar

Garmin Venu 3S snjallúrið er með öflugan 1,2" AMOLED snertiskjá, tilvalinn fyrir æfingar úti í sólinni. Úrið er með fjölda æfinga- og þjálfunareiginleika, þar á meðal 5 ATM vatnsvörn, hjartsláttar og súrefnismæli ásamt velferðareiginleikum sem hjálpa þér að fylgjast með heilsunni. Með Bluetooth tengimöguleika getur þú auðveldlega séð tillkynningar, símtöl og tónlist á úlnliðnum og með Garmin Pay getur þú borgað þráðlaust án þess að taka símann úr vasanum. Ólin hentar úlnliðum með 110 til 175 mm ummáli.

Æfingar
Þetta snjallúr frá Garmin er með allskonar hentuga eiginleika fyrir þá sem vilja mikla hreyfingu. Úrið geymir upplýsingar um allar helstu líkamsræktaræfingar og tæki s.s. að hlaupa, hjóla, hlaupabretti, skíðatæki, þol, yoga og margt annað. Einnig er hægt að synda með úrið og taka það með í sturtu. Með Body Battery Monitor getur þú fylgst með orku líkamans og vitað hvenær þú ert tilbúinn í æfingu. Venu 3S er líka með sérhönnuðum ham fyrir hjólastólanotendur sem nemur hreyfingar og inniheldur forstilltar æfingar. Garmin býður upp á Garmin Coach snjallforrit sem hefur að geyma forstilltar æfingaáætlanir, s.s. fyrir þol, yoga, styrk, pilates og aðrar þolmiklar þrepæfingar. Hægt er að búa til sínar eigin æfingaráætlanir.

AMOLED skjár
Venu 3S snjallúrið er með stórum 1,2" AMOLED skjá sem auðvelt er að sjá, jafnvel í beinu sólarljósi. Með Corning Gorilla Glass 3 getur þú notað úrið allan daginn án þess að hafa áhyggjur af rispum og höggum.

Staðsetningarkerfi
Venu 3S er með innbyggða GPS, GLONASS og Galileo tækni sem mælir fjarlægð og hraða með mikilli nákvæmni, innan sem utandyra. Úrið lætur vita ef setið er meir en klukkutíma.

Velferðareiginleikar
Úrið er með marga eiginleika sem gera þér kleift að sjá og fylgjast með heilsunni. Fylgstu með svefni og stressi eða fáðu tilkynnningar um lúr með Nap Detection. Úrið er líka með morgunskýrslu, heilsumæli fyrir konur, þotuþreytu ráðgjafa og hugleiðslueiginleika.

Vertu í sambandi
Hvort sem þú ert í vinnunni eða í ræktinni tryggir úrið að þú sért alltaf í sambandi, hvar og hvenær sem er. Úrið lætur vita ef þú færð skilaboð og sýnir þau beint á skjánum á úrinu.

Garmin Pay
Skildu veskið eftir heima og notaðu úrið til þess að borga hvar sem er.

Rafhlaða
Úrið er með allt að 10 daga rafhlöðuendingu í hefbundinni notkun (án GPS) en allt að 21 klst rafhlöðuendingu með GPS.

Í kassanum
- Snjallúr
- Snúra fyrir hleðslu og gagnaflutning

Eiginleikar
Snjallúr
Strikamerki
753759314811
Framleiðandi
Garmin
Módel
010-02785-04
Litur
Hvítur
Tegund rafhlöðu
Lithium-ion
Rafhlöðuending
Allt að 10 dagar
Skjágerð
AMOLED
Skjástærð (″)
1,2
Bluetooth
Staðsetningartækni
GPS
Vatnsvörn
5 ATM
Þyngd (g)
40
Snertiskjár
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður