Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Google Nest Audio - Dökkgrár

NESTGA01586NO
Raddstýrði snjallhátalarinn frá Google varpar skýrum hljóð og djúpum bassa sem fyllir herbergið. Hægt er að stjórna snjallheimilinu, heyra fréttir og tilkynningar með Google Assistant og hann getur aðstoðað þig við að setja upp hljóðkerfið.
WiFi
Google Assistant
Innbyggt Chromecast
Samhæft Android / iOS
17.995 kr.
Upplýsingar

Stílhreini og fágaði snjallhátalarinn Google Nest Audio er hannaður fyrir öll heimili og til að bæta lífsgæði allrar fjölskyldunnar. Með bætta hátalaranum og innbyggða Google Assistant með næmum hljóðnemum verður þetta snjalltæki frábær aðstoðarmaður ásamt því að varpa hágæða hljóm frá Spotify, YouTube Music og fleiru.

Hljómur
Þrátt fyrir litla hönnun hefur Google tekist að bæta hljóminn umtalsvert miðað við fyrri kynslóð. Með endurbætta hátalaranum og hugbúnaði getur Google Nest Audio framkallað 75% hærri hljóm með 50% öflugri bassa. Nest Audio aðlagast einnig umhverfinu svo þú færð alltaf frábæran hljóm sama hvað þú hlustar á. Eina sem þú þarft að gera er að segja 'Hey Google' og þú getur hlustað á tónlist, útvarp, hlaðvörp og fleira. Settu saman fjölrýmiskerfi með öðrum Nest hátölurum og skjáum samhæfum Chromecast.

Aðstoðarmaður
Með Google Nest Audio geturðu byrjað daginn með sérhæfðri sameiningu af til dæmis verðuspá, áminningum um fundi eða fréttir. Þú getur einnig bætt vörum á innkaupalista eða stillt vekjaraklukku.

Þekkir raddir
Google Assistant er nógu snjall til að aðgreina raddir og getur veitt öllum á heimilinu persónulega þjónustu eins áminningar, venjur og tónlist. Með Nest Audio getur Assistant lært skipanir, tónlistarsmekk og verður fljótar og fljótari eftir því sem þú notar hann.

Símtöl
Talaðu í símann með Google Duo, háþróaði hátalarinn og hljóðneminn varpa skyrum hljóm svo þú getir tekið símtöl án þess að nota símann.

Snjallheimilið
Heimilistækin eru að vera snjallari og snjallari. Með Google Nest Audio geturðu stjórnað þúsundum snjalltækja, þar á meðal vörum frá Chromecast, LG, Philips Hue og fleiru. Með röddinni einni geturðu stjórnað hitastigi, lýsingu, sjónvarpi, rafmagnstengjum og jafnvel beðið Google um að slökkva á straujárninu ef það gæti hafa gleymst.

Persónuvernd
Eru vinir eða fjölskylda á leiðinni í heimsókn? Þú getur slökkt alveg á hljóðnemanum með einum takka. Þú getur einnig eytt síðustu skipun með því að segja "Hey Google, delete what I just said."

Eiginleikar
Hátalarar (BT,WiFi)
Strikamerki
0193575007908
Framleiðandi
Google
Litur
Grár
Wi-Fi stuðningur
Wi-Fi staðall
WiFi 5 (802.11 b/g/n/ac)
Stærð (HxBxD)
17,5 x 12,4 x 7,8 cm
Samanburður