Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Google Nest Protect reykskynjari m. rafhlöðu

NESTBATTERYND
Tryggðu öryggi fjölskyldunnar og heimilisins frá eldsvoða eða kolmónoxíðeitrunar með Google Nest Protect reykskynjaranum. Fáðu tilkynningar og viðvaranir í símann hvenær sem er.
Skynjar CO, reyk og hita
Innbyggð sírena
Tilkynningar í síma
WiFi tengt
Virkar með öðrum Nest tækjum
Notar 6 AA rafhlöður
22.995 kr.
Upplýsingar

Google Nest reykskynjarinn er öryggistæki sem verndar alla fjölskylduna. Með háþróaðri tækni lætur tækið vita ef eldur kviknar og skynjar magn kolmónoxíðs og fleira. Nest er einfalt í notkun og getur greint hvort um lífshættu sé að ræða. Ef hættan er lítil sendir tækið skilaboð í snjallsímann áður en viðvörunin fer af stað. Tækið endist í meir en 10 ár og yfirfer búnaðinn sjálfkrafa allt að 400 sinnum yfir daginn.

Skynjari
Fjölhæfur skynjari gerir tækinu kleift að greina á milli raunverulegs reyks og vatnsgufu. Tækið lætur vita ef olía er að brenna á hellunni en ekki ef vatn er að sjóða í potti. Með rafefnaskynjara er einnig hægt að greina lífshættulegar og ósýnilegar kolmónoxíðs gufur (CO) í loftinu. Innbyggður hitaskynjari er í tækinu sem greinir allt að 1° hitabreytingar og lætur snemma vita jafnvel ef eldur dreifist hægt.

Viðvaranir
Stundum koma upp hættur sem eru ekki lífshættulegar og þarf tækið því ekki að láta vita með viðvörun. Þess vegna bíður Nest upp á að senda minniháttar viðvaranir í snjallsímann með upplýsingum um hættuna.

Lýsing
Nest reykskynjarinn er með grænan hring með LED lýsingu til að láta vita að allt er með felldu og að hann sé í gangi. Einnig er hægt að stilla lýsinguna svo tækið lýsi hvítri lýsingu þegar labbað er undir það, eða einfaldlega slökkva á því. Gult ljós merkir mögulega hættu s.s. ristuð brauðsneið sem gleymdist. Rautt ljós ásamt viðvörunarhljóði merkir lífshættu. Tækið er einnig með raddviðvörun sem lætur vita hvar hættan er.

Snjallforrit og stillingar
Nest reykskynjarinn tengist þráðlaust í gegnum WiFi til að senda skilaboð í gegnum Nest snjallforritið. Tækið er einnig með Bluetooth til að geta breytt stillingum á fljótlegan hátt eða slökkva á viðvörunarhljóði. Jafnvel þó að ekkert WiFi sé til staðar getur reykskynjarinn sent raddskilaboð. Skynjarinn tengist einnig öðrum Nest tækjum. Hægt er að búa til marga aðganga fyrir fjölskylduna svo allir fái nauðsynlegar upplýsingar.

Rafmagn
Tækið notar 6 AA rafhlöður (í pakka) og lætur vita í gegnum snjallforritið og með raddskipun þegar það þarf að skipta um rafhlöður.

Innifalið í pakkningu
- Nest reykskynjari
- 6x AA rafhlöður
- 4 skrúfur
- Leiðbeiningar

Eiginleikar
Almennt
Strikamerki
0813917020835
Framleiðandi
Google
Annað
WiFi 4 (802.11n)
Litur
Hvítur
Fylgihlutir í kassa
6 AA rafhlöður, festing, 4 skrúfur, leiðarvísir
Stærð (HxBxD)
3,85 x 13,9 x 13,9 cm
Þyngd (g)
379
Greiðsludreifing
6 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 6 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður