GoPro Hero 11 Black Mini útivistarmyndavél
CHDHXF111RW









GoPro Hero 11 Black Mini útivistarmyndavél
CHDHXF111RWGoPro Hero 11 Black Mini útivistarmyndavélin er með allt sem þú þarft í handhægum, endingargóðum pakka. Myndavélin er með hágæða nema sem tekur skarpar, nákvæmar myndir og hægt er að klippa myndbandið fljótlega í timelapse eða slow motion. Með innbyggðu þráðlausu tengingunni er hægt að færa myndir og myndbönd með GoPro Quik smáforritinu. Einnig er hægt að sækja myndbönd leifturhratt með Wi-Fi eða USB-C tengingu.
5.3K myndbönd
Myndavélin getur tekið upp í stórkostlegum 5.3K myndgæðum með 60 römmum á sekúndu eða 4K myndbönd með 120 römmum á sekúndu, fullum af smáatriðum, jafnvel ef þú stækkar myndina.
HyperSmooth 5.0 stöðugleiki
Stafræna stöðugleikatæknin tryggir að upptakan sé jafn stöðug og með stöðugleikastöng. Myndbandsupptakan mun ekki titra, jafnvel þegar þú hjólar á malarvegi. Myndavélin heldur myndbandinu stöðu jafnvel þó hún snúist 360°.
Endingargóð hönnun
Myndavélin er hönnuð til að lifa af hnjask og áreiti. Hún er einnig vatnsheld allt að 10 metrum.
Raddstýring
Með raddstýringareiginleikanum þarftu varla að koma við myndavélina - segðu bara töfraorðin og hún byrjar að taka myndir eða myndbönd. Hero 11 Black getur borið kennsl á 14 skipanir í 11 tungumálum og með 6 hreimum.
Aukahlutir
Veldu úr fjölda festinga og klemma til að hafa myndavélina á þér eða hjá þér.
Aðrir eiginleikar
- 1500 mAh Endur rafhlaða
- 27 MP nemi
- TimeWarp 3.0
- Time Lapse, Slo-Mo og Looping upptökur
- RAW
- Stafræn linsusnið: SportView, Wide, Linear, Linear + Horizon Lock
- Myndbandsupptaka: 5.3K / 60fps, 4K / 120 fps, 2.7K / 240 fps
- Allt að 120 Mbps við 5.3K/4K
- 8- og 10-bit litadýpt
- Stereo hljóðupptaka
- 1080p myndstreymi
- Vefmyndavéla hamur
- Innbyggt Wi-Fi og Bluetooth
- Innbyggt GPS
- Micro-SD minniskortarauf í allt að 256 GB stærð (Mælt er með Speed Class 10 eða betra)
- USB-C hleðslutengi