Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
JBL Live Beam 3 þráðlaus heyrnartól - Fjólublá
True Adaptive Noise Cancelling
Stjórnaðu bakgrunnshljóðinu eftir því hvað hentar hverju sinni. Þú getur auðveldlega slökkt á bakgrunnshljóðum eða leyft þeim að blandast tónlistinni þinni. Fjórir hljóðnemar stilla sjálfkrafa stillingarnar þínar miðað við umhverfið, þannig að þú getur haldið sömu hljóðeinangrun allan tímann.
Snjallt hleðslubox
Hleðsluboxið fyrir heyrnartólin eru með 1,45" LED skjá þar sem þú getur breytt öllum helstu stillingum heyrnartólanna, séð tilkynningar og stýrt tónlistinni þinni allt án þess að þurfa að nota snjallforrit í símanum.
48 klukkustunda rafhlöðuending
Rafhlaðan í heyrnartólunum endist í allt að 12 klukkustundir og með hleðsluboxinu færðu allt að 36 klukkustundir í viðbót. Það tekur einungis 2 tíma að ná fullri hleðslu, en þú ert á hraðferð þá nærðu allt að 4 tíma notkun eftir aðeins 10 mínútna hleðslu.
- Hlustunartími með slökkt á BT og ANC - allt að 12 klst
- Hlustunartími með kveikt á BT og ANC - allt að 10 klst
- Hlustunartími með kveikt á BT og True Adaptive ANC - allt að 9 klst
- Símtalstími með slökkt á ANC - allt að 6 klst
- Símtalstími með kveikt á ANC - allt að 5 klst
Einstaklega skýr símtöl
6 hljóðnemar á heyrnartólunum draga úr hávaða í kringum þig og minnka áhrif vinds á hljómgæðin. Einnig er hægt að stilla hversu hátt það heyrist í bæði þér og viðtalanda þínum.
Google Finder
Ef þú týnir heyrnartólunum þínum, getur Google Finder aðstoðað þig við að finna þau aftur.
IP55 vatns- og rykvarin
Þökk sé IP55 vottun heyrnartólanna, þarft þú ekki að hafa áhyggjur af því að vera með þau á þér í erfiðum æfingum.