Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Kindle Paperwhite 11. kynslóð (2021) - Svört
KINPW21BLAUppselt

Kindle Paperwhite 11. kynslóð (2021) - Svört
KINPW21BLA2021 útgáfan af Kindle Paperwhite er 11. kynslóð lesbretta frá Amazon. Tölvan er með 8 GB geymslupláss sem dugar fyrir þúsundir bóka og er útbúin rafhlöðu sem endist í allt að 10 daga. Paperwhite tölvan er vatns- og rykvarin með IPX8 vottun og kemst því með þér hvert sem er. Kindle styður einnig Audible hljóðbækur ef maður er með áskrift frá Audible.
IPX8 vottun
Lesbrettið er vatnsvarið með IPX8 vottun samkvæmt IP staðlinum. Brettið getur legið í allt að tveggja metra dýpi í allt að 60 mínútur án skemmda. Vottunin veitir því áhyggjulausan lestur við sundlaugarbakkann eða í heitapottinum.
Paperwhite skjár
Paperwhite skjárinn gerir upplifunina þá sömu og við að lesa á pappír. Skjárinn í lesbrettinu gerir þér kleift að stilla birtu skjásins frá hvítu ljósi yfir í mýkra gult ljós. Einnig er hægt að fínstilla leturstærð.
Audible
Paraðu Bluetooth heyrnartól við lesbrettið og hlustaðu á hljóðbækur með Audible þjónustunni.
Studd skráarsnið
Kindle Format 8 (AZW3), Kindle (AZW), TXT, PDF, unprotected MOBI, PRC natively; HTML DOC, DOCX, JPEG, GIF, PNG, PMP through conversion; Audible audio format (AAX).