Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Lenovo Legion Go leikjatölva Z1 Extreme

LE83E1000KMX
Lenovo Legion Go setur kraft leikjaborðtölvu í þínar hendur. Legion Go er útbúin 8,8" QHD+ 144 IPS LED snertiskjá, átta kjarna AMD Ryzen Z1 Extreme örgjörva með Radeon RDNA 3 skjástýringu og 16 GB hröðu LPDDR5X vinnsluminni.
512 GB NVMe SSD
144Hz 8,8" QHD+ IPS snertiskjár
AMD Ryzen Z1 Extreme örgjörvi
16 GB vinnsluminni
Windows 11 stýrikerfi
Wi-Fi 6E, Bluetooth 5.2
129.995 kr.
Upplýsingar

Lenovo Legion Go leyfir þér að spila uppáhalds leikina þína hvar sem er. Leikjatölvan notar Windows 11 ásamt Legion Space viðmóti sem gefur þér auðveldan aðgang að leikjasafninu þínu og öllum helstu leikjaverslunum.

AMD Ryzen Z1 Extreme örgjörvi
Átta kjarna AMD Ryzen Z1 Extreme örgjörvinn er byggður á Zen 4 arkitektúr og skilar hágæða frammistöðu. Með honum er auðvelt að spila alla uppáhalds leikina þína og ýmis forrit. Örgjörvinn er studdur af 16 GB LPDDR5X vinnsluminni fyrir frábæra afkastagetu.

AMD Radeon RDNA 3 skjástýring
Lenovo Legion Go er útbúin afkastamikilli AMD Radeon skjástýringu svo þú getur notið þess að spila leiki í góðum gæðum. Hún er skilvirk og öflug og styður ray tracing tækni sem færir ljósgeisla í leiknum nær raunveruleikanum.

144 Hz IPS snertiskjár
Spilaðu uppáhalds leikina þína með viðbragðsfljóta 144 Hz snertiskjánum sem tryggir frábæra leikjaupplifun. 8,8" QHD+ (2560x1600) IPS snertiskjárinn birtir nákvæm myndgæði ásamt fallegum litum og breiðum sjónarhornum. Með 500 nit birtustigi er auðvelt að spila í björtu umhverfi.

Hönnun
Legion Go notar Hall áhrif (e. Hall effect) í stýripinnum fyrir hámarks viðbragðstíma og nákvæmni. Innbyggðan fjölsnertiflöt, stóra D-takka, músarhjól og 10 forritanlega takka sem eru þægilega staðsettir.

FPS hamur
Þú getur aftengt stýripinnana og sett hægri stýripinnann í segulfestingu sem fylgir með og þannig notað hann sem mús fyrir betri nákvæmni og stjórn.

Geymslupláss
512 M.2 NVMe SSD drifið gerir þér kleift að geyma alla leikina þína og tryggir að þú hafir alltaf aðgang að þeim. Drifið ræsir stýrikerfi og leiki hratt og ef þú vilt enn meira pláss er hægt að stækka geymsluna með MicroSD minniskorti.

Tengimöguleikar
- 2x USB-C 4.0 tengi
- Wi-Fi 6E (802.11ax)
- Bluetooth 5.2
- 3,5 mm sambyggt heyrnartóla- og hljóðnematengi

Aðrir eiginleikar
- Windows 11 Home 64-bit
- 2-cell 49,2 Wh rafhlaða

Eiginleikar
Leikjatölvur
Strikamerki
197532566767
Framleiðandi
Lenovo
Gerð leikjatölvu
Handleikjatölva
Litur
Svartur
Geymslurými (GB)
512
Bluetooth
Bluetooth útgáfa
5.2
Wi-Fi stuðningur
Já, Wi-Fi 6
Wi-Fi staðall
Wi-Fi 6E (802.11ax)
USB tengi
USB-C
Stærð (HxBxD)
13,1 x 29,9 x 2 cm
Þyngd (g)
854
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður