Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Lenovo LOQ i5/16/512/4060 leikjaturn
Lenovo LOQ leikjaturninn hjálpar þér í næstu orustu með öflugum 13. kynslóðar Intel örgjörva og GeForce RTX 4060 skjákorti sem skilar áreiðanlegri frammistöðu og frábærum myndgæðum. Tölvan er líka með 16 GB DDR4 vinnsluminni og 512 GB M.2 PCIe SSD sem styttir biðtíma. Hægt er að tengja fjölda tækja með tengjunum og njóta leikja í allt að 8K upplausn með HDMI 2.1 tenginu.
Örgjörvi
Tölvan er knúin af tíu kjarna Intel Core i5-13400F örgjörva sem tryggir góða frammistöðu jafnvel með mörg kröfuhörð forrit í gangi. Hann er studdur af 16 GB DDR4 vinnsluminni.
Skjákort
Nvidia GeForce RTX 4060Ti skjákortið fer létt með kröfuharða AAA leiki. Kortið er með 8 GB af sérhæfðu vinnsluminni og nýtir næstu kynslóðar Ada Lovelace arkítektur sem var hönnuð með leiki framtíðarinnar í huga. Það er talsvert afkastameira en fyrri kynslóð og veitir betri frammistöðu, fleiri ramma á sekúndu og betri myndgæði á skilvirkari hátt. Með ray-tracing tækni getur þú notið raunverulegra ljósgeisla og endurskin í leikjum.
Geymslurými
512 GB M.2 PCIe NVMe SSD drif ræsir stýrikerfi, forrit og leiki á svipstundu þannig að biðin er nánast engin við ræsingu á tölvunni og á leikjum.
HDMI tengi
HDMI 2.1 út er í boði á skjákortinu svo hægt sé að tengja tölvuna við sjónvarp eða skjávarpa fyrir afbragðs gæði við áhorf.
Tengimöguleikar
- 1x HDMI 2.1
- 1x HDMI 1.4
- 3x DisplayPort 1.4
- 1x VGA
- 1x USB-C 3.2 Gen 1
- 1x USB-A 3.2 Gen 2
- 1x USB-A 3.2 Gen 1
- 4x USB-A 2.0
- Wi-Fi 6E (11ax 2x2), Bluetooth 5.1
- Gigabit Ethernet
- 3,5 mm sambyggt heyrnartóla- og hljóðnematengi
Aðrir eiginleikar
- Windows 11 Home 64-bit
- 380W aflgjafi