Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
LG 55" OLED B2 (2022) sjónvarp
LG 55" B2 (2022) OLED sjónvarpið veitir frábæra upplifun, hvort sem þú ert að horfa á þætti, kvikmyndir eða eitthvað allt annað. Ótrúleg myndgæði, djúpir svartir litir og óendanleg birtuskil gera myndefnisáhorfin enn skemmtilegri. Hver pixill er virkjaður sjálfstætt án nokkurrar baklýsingar. Hann framkallar sína eigin birtu sem að veitir þér nákvæmari og skarpari mynd en jafnvel bestu LCD skjáir geta.
OLED
OLED (Organic Light Emitting Diodes) sjónvarp er tækni með frábærum myndgæðum á mun þynnri skjá en á t.d. LCD og Plasma. Dýpstu dökku litir sem eru í boði en einnig raunverulegasta litróf sem aðeins OLED skjár getur gefið kost á.
Filmmaker Mode
Með þessari stillingu fjarlægir sjónvarpið Motion Smoothing stillingar sem gerir hreyfingar í mynd skýrari. Filmmaker Mode varðveitir upprunalega liti, hlutföll og rammatíðni myndefnisins þannig að upplifunin er nær því sem kvikmyndaframleiðendur sáu upphaflega fyrir sér.
OLED Motion
LG sjónvörp koma með OLED Motion stillingu sem að bætir svörtum römmum inn í útsendinguna og minnkar þar af leiðandi hreyfiþoku (motion blur). Hentar einstaklega vel í íþróttaleikjum en getur leitt til þess að myndin virðist dekkri en ella.
5. kynslóðar a7 4K örgjörvi
B2 serían af LG OLED sjónvörpum birtir skarpa og litríka mynd þökk sé 5. kynslóðar alpha-7 4K örgjörvanum. Örgjörvinn styður Dolby Vision, HDR10 Pro og HLG. Gervigreind í örgjörvanum greinir og lærir af efninu sem spilað er og tryggir með því bestu mögulega myndgæði. Örgjörvinn sér sjálfvirkt um stafræna uppskölun á lægri upplausnum yfir í UHD upplausn og bestar það myndefni sem birtist á skjánum.
4K/UHD upplausn
4K/UHD upplausn (3840x2160pix) þýðir fjórum sinnum fleiri pixlar en í Full HD sjónvarpi (1920x1080). Einnig færðu bestu mögulegu gæðin núna með UHD uppskölun á Full HD eða HD Ready efni. Upplausn segir til um hve margir pixlar komast fyrir í mynd. Einn pixill sýnir einn lit hverju sinni og saman verður til mynd. Með fleiri pixlum eykst gæði myndarinnar og smáatriði verða greinilegri.
4K Cinema HDR
Cinema HDR frá Dolby Vision styður mörg HDR snið eins og HDR10 Pro, Dolby Vision og HLG sem gerir tækinu þínu kleift að sýna meira en milljarð af litum. HDR sér um að dekkri hlutar myndarinnar verði dekkri og bjartari hlutarnir bjartari. Þú færð því enn skarpari mynd og meiri litbrigði.
Dolby Atmos
Háþróuð Dolby Atmos tækni og er með 2 + 2 rása hátalarakerfi sem leikur raunverulega eftir hvaðan hljóðin berast, hvort sem það eru hvísl eða hávaðasamar sprengingar. Í samvinnu við Dolby Vision IQ færðu kvikmyndina beint í æð!
webOS
Snjallsjónvörp með webOS eru bæði einföld og notandavæn. Hægt er að vafra um í sjónvarpinu á þægilegan hátt með snjöllu viðmóti svo ekkert mál er að geyma t.d. bestu þættina og horfa á þá síðar.
ThinQ AI
LG notar gervigreind sem býður upp á Internet of Things tengingu, Deep Learning mynd- og hljóðvinnslu sem og marga aðra eiginleika.
Hannað fyrir leiki
Notaðu sjónvarpið á fleiri en einn máta. B2 sjónvörpin eru með Nvidia G-Sync Compatible og AMD FreeSync tækni sem tryggja mjúkar hreyfingar í leikjum.
Magic Remote
Magic Remote er gyro-based fjarstýring sem hægt er að stjórna LG sjónvarpinu með einföldum handhreyfingum. Fjarstýringin er með skrunhjóli svo þægilegt er að skoða vefsíður. Einnig er hægt að nota Magic Remote með öðrum tækjum og er hún búin raddstýringu.
Uppsetning
Ertu ekki viss hvar á að setja nýja sjónvarpið? Við eigum mikið úrval af veggfestingum sem geta hjálpað þér að finna það sem hentar þér og þínu heimili. Fótur fylgir sjónvarpinu.
Snúrur og fylgihlutir
Ef þú ætlar að tengja sjónvarpið við afruglara, leikjatölvu eða heimabíó þarf að passa að réttu snúrurnar eru til staðar. Þú finnur hljóð- og myndsnúrur í ELKO.