Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
LG Signature þvottavél og þurrkari LSWD100E
LG Signature er sambyggð þvottavél/þurrkari sem tekur allt að 12 kg í þvott og 7 kg í þurrkun. Stjórnborðið er í hurðinni og hægt er að opna huðina með því að ýta á hana. Vélin er með 1600 snúninga, WiFi tengingu, TurboWash og sjálfvirka skömmtun á þvottaefni. Vélin stillir sjálfkrafa vatnsmagn og tíma eftir þyngd þvottsins.
AI DD tækni
Tækni sem vigtar þvottin og mælir einnig mjúkleika efnisins svo endingartími þvottsins lengist.
Turbo Wash
Með þessu kerfi tekur aðeins 39 mínútur að þvo þvottinn. Kerfið fer vel með þvottinn þrátt fyrir stuttan þvottatíma.
SmartThinQ
Hægt er að tengjast SmartThinQ snjallforritinu sem opnar möguleika á fleiri skemmtilegum eiginleikum sem vélin hefur uppá að bjóða.
Tímastillt ræsing
Hægt er að seinka ræsingu á kerfi ef óskað er eftir því að vélin klári þvottinn á einhverjum ákveðnum tíma, t.d. rétt eftir vinnu.
Sjálfvirk skömmtun
Fylltu á vélina með þvottaefni og hún sér um að blanda réttu magni af þvottaefni og vatni eftir þörf.
Centum System mótor
Centum System er kolalaus mótor sem dregur úr titringi sem gerir vélina hljóðlátari
Uppsetning
Hægt er að nota gúmmífætur undir vélina til að styðja betur við hana og gera hana enn hljóðlátari. Einnig er hægt að kaupa sérstakan stöflunarrekka ef óskað er eftir því að setja aðra vél ofaná. Hafa ber í huga að báðar vélarnar þurfa að vera í sömu stærð ef þær eiga staflast ofan á hvor aðra.
Viðhald
Hafa ber í huga að allar þvottavélar þurfa reglulega að vera hreinsaðar. Heitt og rakamikið umhverfi getur valdið myglu og vondri lykt sem enginn vill í þvottinn. Hægt er að hreinsa tromluna á einfaldan hátt með því að stilla á 85-90°C kerfi með tómri vél og örlitlu þvottaefni.
ATH! Þarf að hafa það í huga að reglulega þarf að þrífa tromluna sem kemur í veg fyrir vonda lykt og myglu. Nóg er að sótthreinsa tromluna með því að stilla vélina tóma á 85-90 gráða þvott.