Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
LG þvottavél/þurrkari CM20T5S2E
Láttu mig vita
Skráðu þig inn til að fá tilkynningu þegar þessi vara er komin aftur á lager.
Með sambyggða þvottavél og þurrkaranum frá LG spararðu tíma og orku. Direct Drive mótorinn er hljóðlátur og skilvirkur. Vélin hefur 8 kg þvottagetu, 5 kg þurrkgetu, getur farið í 1400 snúninga á mínútu og er með mörg hentug kerfi.
Þvotta og þurrkgeta
Vélin hefur 8 kg þvottagetu og 5 kg þurrkgetu. Tilvalið fyrir fjölskyldur með börn og/eða marga á heimilinu sem vilja þvo sem mest á stuttum tíma.
Kerfi
Þessi vél er með mörg þvottakerfi fyrir hversdagsleg þrif. Þar á meðal eru 15° C , krumpufrítt, bletta og silkikerfi.
Hraðkerfi
Vélin býður upp á 30 mínútna hraðkerfi fyrir hálfar vélar, fullkomið þegar rétt þarf að fríska upp á ákveðin föt.
Tímaræsing á kerfi
Hægt er að tímastilla þegar óskað er eftir að þvottakerfi fari af stað. Tilvalið er að nota tímaræsingu ef þú vilt að vélin fari í gang þegar þú ert í vinnu eða skóla og verður þá nýbúin þegar þú kemur heim.
Gufukerfi
Með LG gufukerfinu nærðu erfiðustu blettunum. Vélin notar gufu í bland við vatn til að brjóta niður alls konar bletti.
Kolalaus mótor
Ólíkt öðrum mótorum þá þarf minna viðhald við kolalausan mótora og reynast þeir öruggari og hagkvæmari í notkun.
Viðhald
Hafa ber í huga að allar þvottavélar þurfa reglulega að vera hreinsaðar. Heitt og rakamikið umhverfi getur valdið myglu og vondri lykt sem enginn vill í þvottinn. Hægt er að hreinsa tromluna á einfaldan hátt með því að stilla á 85-90°C kerfi með tómri vél og örlitlu þvottaefni.
ATH! Þarf að hafa það í huga að reglulega þarf að þrífa tromluna sem kemur í veg fyrir vonda lykt og myglu. Nóg er að sótthreinsa tromluna með því að stilla vélina tóma á 85-90 gráða þvott.