Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Logik þvottavél L612WM23E
Logik L612WM23E þvottavélin er 6 kg með einföldum, notendavænum LED skjá og með mörg fjölhæf kerfi t.d. 15 mín hraðkerfi og gufukerfi.
6 kg þvottageta
Hægt er að þvo nokkrar flíkur á augabragði eða fylla vélina vikulega með þvotti. Þvottavélin er með 6 kg þvottagetu.
Kerfi
Þvottavélin er með mörg hentug kerfi sem tryggja að fötin verði meðhöndluð rétt.
Hraðkerfi
Ef tíminn er á þrotum og það þarf að þrífa í flýti er 15 mínútna Express kerfi í vélinni til að redda málunum.
Steam function
Þrífðu fötin þín einstaklega vel með Steam gufukerfi sem fjarlægir 99,9% af bakteríum og öðrum ofnæmisvöldum.
Tímaræsing á kerfi
Hægt er að tímastilla þegar óskað er eftir að þvottakerfi fari af stað. Tilvalið er að nota tímaræsingu ef þú vilt að vélin fari í gang þegar þú ert í vinnu eða skóla og verður þá nýbúin þegar þú kemur heim.
Skjár
Sjáðu eftirstöðvar tíma eða stjórnaðu vélinni með notendavæna skjánum.
Uppsetning
Hægt er að nota gúmmífætur undir vélina til að styðja betur við hana og gera hana enn hljóðlátari. Einnig er hægt að kaupa sérstakan stöflunarrekka ef óskað er eftir því að setja aðra vél ofaná. Hafa ber í huga að báðar vélarnar þurfa að vera í sömu stærð ef þær eiga staflast ofan á hvor aðra.
Viðhald
Hafa ber í huga að allar þvottavélar þurfa reglulega að vera hreinsaðar. Heitt og rakamikið umhverfi getur valdið myglu og vondri lykt sem enginn vill í þvottinn. Hægt er að hreinsa tromluna á einfaldan hátt með því að stilla á 85-90°C kerfi með tómri vél og örlitlu þvottaefni.
ATH! Þarf að hafa það í huga að reglulega þarf að þrífa tromluna sem kemur í veg fyrir vonda lykt og myglu. Nóg er að sótthreinsa tromluna með því að stilla vélina tóma á 85-90 gráða þvott.