Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Logitech MX Anywhere 3 þráðlaus mús - Dökkgrá
Logitech MX Anywhere 3 þráðlausa músin er þægileg, vinnuholl og nákvæm. Enn fremur er hún lítil og fellur vel að hendi með traustu gripi.
MagSpeed skrunhjól
Skrunhjólið er gert úr burstuðu stáli til að veita þér hratt og mjúkt skrun. Músin getur flett allt að 1000 línur á sekúndu og er með tvær hentugar stillingar með rafsegultækni. Þú getur flett eina línu í einu í Ratched Mode þar sem músin gefur viðbragð við hverja hreyfingu, eða leyft henni að rúlla í Free Spin Mode og náð enda skjalsins á augabragði.
Takkar
Með þumlatökkunum geturðu flett fram og til baka á vefsíðum, skjölum og fleiru. Haltu inni Gesture hannpinum og færðu músin afturábak, áfram, vinstri eða hægri til að framkvæma stillanlegar aðgerðir í Logitech hugbúnaðinum.
Darkfield laser nemi
Með nákvæma laser nemanum virkar músin á flestum yfirborðum, þar á meðal gleri (4 mm þykku að lágmarki). Hægt er að stilla nákvæmni á milli 200 og 4000 DPI.
Logitech Flow
Með Logitech Options hugbúnaðinum geturðu notað músina til að afrita texta, myndir og skjöl á milli allt að þriggja tölva.
Tengimöguleikar
Músin getur tengst allt að þremur tölvum á sama tíma með Bluetooth og þú getur skipt á milli með sérhæfðum takka. Auk þess geturðu tengt Unifying Nano Receiver móttakara í USB tengi á tölvunni. Móttakarinn styður allt að sex Logitech Unfying tæki á sama tíma, svo þú getur spara USB tengin á tölvunni.
Rafhlaða
Innbyggða rafhlaðan endist allt að 70 daga (við meðalnotkun) á hverri hleðslu. Auðvelt er að hlaða hana með meðfylgjandi USB-A í USB-C snúru og eftir einungis mínútu hleðslu geturðu notað músina í allt að þrjár klukkustundir.