Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Miele W1 Excellence þvottavél WEI895WCS - Hvít
Miele W1 Excellence WEI895WCS er háþróuð þvottavél sem býður upp á marga eiginleika til að einfalda þvottinn og bæta árangur. Með PowerWash tækni nær vélin hágæða þvotti á aðeins 49 mínútum, og TwinDos kerfið tryggir að rétt magn af þvottaefni sé notað fyrir hvert skipti, sem sparar sápu og bætir árangur.
SteamCare dregur úr þörf á straujun um allt að 50%, sem sparar tíma og fyrirhöfn. Vélin er einnig með AddLoad, sem gerir þér kleift að bæta við fatnaði eftir að þvottur er hafinn. Hún er Wi-Fi tengd með Miele@home fyrir enn betri stjórn.
Vélin hefur 9 kg þvottagetu og er í orkuflokki A, sem tryggir lága orkunotkun.
Uppsetning
Hægt er að nota gúmmífætur undir vélina til að styðja betur við hana og gera hana enn hljóðlátari. Einnig er hægt að kaupa sérstakan stöflunarrekka ef óskað er eftir því að setja aðra vél ofan á. Hafa ber í huga að báðar vélarnar þurfa að vera í sömu stærð ef þær eiga staflast ofan á hvor aðra.
Viðhald
Hafa ber í huga að allar þvottavélar þurfa reglulega að vera hreinsaðar. Heitt og rakt umhverfi getur valdið myglu og vondri lykt sem enginn vill í þvottinn. Hægt er að hreinsa tromluna á einfaldan hátt með því að stilla á 85-90°C kerfi með tómri vél og örlitlu þvottaefni.
Ath. Þarf að hafa það í huga að reglulega þarf að þrífa tromluna sem kemur í veg fyrir vonda lykt og myglu. Nóg er að sótthreinsa tromluna með því að stilla vélina tóma á 85-90 gráða þvott.