Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Nokia C32 64GB snjallsími - Bleikur
Horfðu á myndbönd og taktu fallegar myndir með Nokia C32 snjallsímanum. Hann er með stóran 6,52" HD+ TFT LCD skjá, öflugan átta kjarna örgjörva ásamt 3GB vinnsluminni með VirtualRAM stækkun fyrir kröfuharðari forrit, 50 MP aðalmyndavél og stóra 5000 mAh rafhlöðu.
Skjár
Nokia C32 er með stóran 6,52" TFT LCD skjá sem veitir þér HD+ upplausn eða 720 x 1600 pixla. Skjárinn er þakinn af hertu 2,5D gleri sem verndar skjáinn gegn höggum og lætur hann endast lengur.
Myndavélar
Taktu fallegar myndir með þremur myndavélum Nokia C32 snjallsímans. 50 MP aðalmyndavélin með f/1.8 ljósopi veitir þér skarpar og nákvæmar myndir, jafnvel í dimmu umhverfi. Taktu HD 1080p myndbönd eða notaðu 2 MP macro myndavélina fyrir frábærar nærmyndir. Taktu fallegar sjálfur með 8 MP sjálfumyndavélinni og deildu þeim með vinum.
Kraftur og geymsla
C32 snjallsíminn er með öflugan átta kjarna Unisoc SC9863A örgjörva sem fer létt með dagleg verkefni. Skoðaðu samfélagsmiðla, vafraðu á netinu, spilaðu leiki og streymdu myndböndum auðveldlega með 3GB vinnsluminninu. Geymdu gögn, skjöl og myndir á 64 GB innra minni símans, sem er auðvelt að stækka með MicroSD minniskorti í allt að 256 GB stærð.
Rafhlaða
Síminn hefur 5000 mAh rafhlöðu til að skemmta þér út allan daginn. Með USB-C tenginu geturðu hlaðið símann þinn og flutt gögn.
Aðrir eiginleikar
- DualSIM fyrir tvö Nano-SIM kort
- USB-C 2.0 hleðslutengi
- Wi-Fi 4 (802.11n)
- Bluetooth 5.2
- Fingrafaralesari
- GPS, Beidou og Glonass staðsetningarþjónusta
- IP52 ryk- og vatnsvörn
- 3,5 mm Mini Jack tengi