Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

OnePlus Nord 3 5G 16GB/256GB snjallsími - Grænn

OPN325616GREE
OnePlus Nord 3 5G snjallsíminn er tilbúinn í allar áskoranir með öflugum átta kjarna örgjörva, mögnuðu þriggja myndavélakerfi með 50 MP aðalmyndavél, stórum 6,74" 120Hz FHD+ AMOLED skjá og 5000 mAh rafhlöðu með 80 W hraðhleðslu.
6,74" 120 Hz FHD+ AMOLED skjár
MTK Dimensity 9000 örgjörvi
256 GB / 16 GB RAM
50/16/2 MP myndavélar
Wi-Fi 6, Bluetooth 5.3
5000 mAh, 80W hleðsla
99.995 kr.
Upplýsingar

Taktu frábærar myndir og upplifðu mjúkar hreyfingar með afkastamikla OnePlus Nord 3 5G snjallsímanum. Hann er knúinn af átta kjarna MediaTek Dimensity 9000 örgjörva sem vinnur með 16 GB vinnsluminni til að ráða við kröfuharða leiki, myndvinnsluforrit og fleira. Taktu nákvæmar myndir í 4K gæðum með þriggja myndavélakerfinu og sjáðu hvað þú tókst upp á stóra 6,74" 120 Hz AMOLED snertiskjánum. Með allt að 80 W SuperVooc hraðhleðslu er auðvelt að hlaða símann á mínútum.

Skjár
Upplifðu mjúkar hreyfingar á 120 Hz AMOLED snertiskjá OnePlus Nord 3 5G og njóttu þess að vafra og skrolla. 6,74" skjárinn er með 2772 x 1240p upplausn sem styður HDR10+ og gerir þér kleift að horfa á myndbönd og kvikmyndir í frábærum gæðum. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af skjánum þar sem hanne r þakinn AGC Dragontail gleri sem veitir aukna vörn gegn höggum og rispum.

Myndavélar
Náðu öllum mikilvægu augnablikunum með magnaða þriggja myndavélakerfinu með 50 MP aðalmyndavél með f/1.8 ljósopi fyrir frábær gæði í dimmu umhverfi. Með aðalmyndavélinni getur þú tekið upp hágæða 4K myndbönd með 60 fps eða 1080p í 60 fps með auknum stöðugleika. Auk þess getur þú tekið upp Slo-mo, Time-lapse og Dual-view myndbönd með mörgum upptökusniðum. Náðu öllu landslaginu eða taktu frábærar hópmyndir með 8 MP gleiðlinsunni. Auk þess getur þú tekið nærmyndir með 2 MP macro myndavélinni. 16 MP f/2.4 sjálfumyndavélin tekur skýrar sjálfur.

Afköst og geymsla
OnePlus Nord 3 5G er tilbúinn í allar áskoarnir með átta kjarna MediaTek Dimensity 9000 örgjörva sem styður 5G símkerfi. Í samvinnu við 16 GB vinnsluminnið er auðvelt að spila kröfuharða leiki, stunda fjölverkavinnslu eða klippa myndbönd á ferðinni. Geymdu öll mikilvægu gögnin og myndir á 256GB innra minninu.

OxygenOS 13.1
OxygenOS er notendavænt viðmót þróað af OnePlus til að skila hraðri og notendavænni upplifun. Viðmótið veitir fjölda stillinga, þar á meðal Dark Mode, Zen Mode, Always-On Display og fleiri.

Rafhlaða og hleðsla
Með stóru 5000 mAh rafhlöðunni getur þú notið þess að nota símann tímunum saman án þess að þurfa að stinga honum í samband. Þegar þörf er á hleðst hann fljótt með 80 W SuperVooc hraðhleðslu.

Aðrir eiginleikar
- Tvær nanoSIM raufar
- Wi-Fi 6 (802.11ax)
- Bluetooth 5.3 Low Energy
- NFC fyrir snertilausar greiðslur
- GPS, GLONASS, Galileo, Beidou og QZSS staðsetningarþjónustur
- Fingrafaralesari á hlið

Eiginleikar
Farsímar
Strikamerki
6921815625063
Framleiðandi
OnePlus
Fjöldi SIM korta
2
SIM
nanoSIM
Vörutegund
Snjallsími
Litur
Grænn
Tegund rafhlöðu
Lithium-polymer
Rafhlaða (mAh)
5000
Hraði örgjörva (GHz)
3,05
Geymslurými (GB)
256
Vinnsluminni (GB)
16
Skjágerð
AMOLED
Skjástærð (″)
6,7
Nákvæm skjástærð
6,74
Upplausn í pixlum
2772 x 1240
Endurnýjunartíðni (Hz)
120 Hz
Birtustig (nit)
1450
Stýrikerfi
Android
Útgáfa stýrikerfis
Android 13, OxygenOS 13.1
Bluetooth
Bluetooth útgáfa
5.3
Wi-Fi stuðningur
Já, Wi-Fi 6
Wi-Fi staðall
Wi-Fi 6 (802.11ax)
Símkerfi
5G
3G kerfi
HSDPA 800 / 850 / 900 / 1700(AWS) / 1900 / 2100
4G kerfi
1, 2, 3, 4, 5, 7, 8, 12, 17, 18, 19, 20, 25, 26, 28, 32, 38, 39, 40, 41, 66
5G kerfi
1, 2, 3, 5, 7, 8, 12, 20, 25, 28, 38, 40, 41, 66, 77, 78 SA/NSA
USB
USB-C
Útvarp
Nei
Minniskortarauf
Nei
NFC
3,5mm mini-jack tengi
Nei
Corning Gorilla Glass
5
Staðsetningartækni
GPS,GLONASS,Beidou,Galileo,QZSS
Aflæsing
Fingrafaraskanni
Flass
LED
Myndbandsupptaka
4K@30/60fps, 1080p@30/60/120fps
Bakmyndavél 1
50 MP, f/1.8, 24mm, OIS
Bakmyndavél 2
8 MP, f/2.2, 112˚
Bakmyndavél 3
2 MP, f/2.4
Sjálfumyndavél 1
16 MP, f/2.4, 24mm
Aukahlutir í sölupakkningu:
80W hleðslutæki, USB-C snúra
Hleðslutæki fylgir
Stærð (HxBxD)
163 x 75 x 8,2 mm
Þyngd (g)
193
Snertiskjár
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður