Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Paper Mario: The Origami King (SWI)
Komdu með Peach prinsessu, Mario og Luigi í Origami hátíðina í Paper Mario: The Orgami King.
King Olly - sem þykist stjórna Origami konungsríkinu - virðist ætla að gera eitthvað ógnvekjandi, að minnsta kosti á blaði. Einhver verður að bjarga deginum! Í Paper Mario: The Origami King hittir Mario einhverjar stærstu áskoranir hingað til. Og ef það er ekki nóg, hefur King Olly bundið kastala Peach og flutt hann í fjarlægt fjall. Hann er meira að segja búinn að umbreyta þegnum Bowser í hermenn til að aðstoða sig.
Sem betur fer er Mario í stakk búin með nýjum tækjum til að steypa King Olly af stóli. Nýr eiginleiki sem kallast 1000-Fold Arms gerir þér kleift að breyta landslagi með því að draga, teygja úr eða brjóta búta af. Með þessum eiginleikum geturðu uppgötvað nýja staði, leyst þrautir og fleira. Í ævintýrinu geturðu líka fengið aðstoð frá þekktum gömlum persónum sem og nýjum, þar á meðal systur King Olly, Olivia og aðra sem þú hefðir ekki búist við. Jafnvel Bowser er tilbúinn að aðstoða Mario gegn ógurlega King Olly.