Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snúrur og rafmagn

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Philips 75" PUS8807 LED sjónvarp (2022)

75PUS8807
Ótrúleg hljóð og myndgæði leynast í PUS8897 snjallsjónvarpinu frá Philips. Tækið státar þriggja-hliða Ambilight lýsingu, P5 Perfect Picture örgjörva og lifandi HDR tækni. Njóttu þess að horfa á uppáhalds myndirnar eða spila flottustu leikina, allt með frábærum gæðum. Android stýrikerfið býður einnig upp á heilan heim afþreyingar ásamt raddstýringu.
120Hz 4K UHD LED snjallsjónvarp
P5 Perfect Picture Engine örgjörvi
Android 11 stýrikerfi
2x 2.1, 2x 2.0 HDMI tengi
300 x 300 VESA
Þriggja hliða Ambilight lýsing
Þessi vara er hætt í sölu og kemur ekki aftur
Upplýsingar

Sökktu þér í heim frábærra myndgæða með Philips 75" PUS8807 4K snjallsjónvarpinu. Tækið afkastar bæði nákvæmum smáatriðum og háum gæðum í hljóði og mynd. 4K UHD myndgæðin veita þér raunverulega HDR liti og P5 Perfect Picture örgjörvinn sér um að besta myndefnið sjálfvirkt. Þriggja hliða Ambilight lýsingin bætir upplifunina enn frekar með því að lýsa upp svæðið í kringum skjáinn. HDMI 2.1 tenging og hraður viðbragðstími gerir tækið að frábærum leikjaskjá.

4K/UHD upplausn
4K/UHD upplausn (3840x2160) þýðir fjórum sinnum fleiri pixlar en í Full HD sjónvarpi (1920x1080) auk UHD uppskölunar á Full HD eða HD Ready efni. Upplausn segir til um hve margir pixlar komast fyrir í mynd. Einn pixill sýnir einn lit að hverju sinni og í sameiningu framkalla pixlarnir mynd á skjáinn. Með fleiri pixlum eykst gæði myndarinnar og smáatriði verða greinilegri.

Ambilight lýsing
Með þriggja hliða Ambilight lýsingu virðist sjónvarpið enn stærra. Tækið litar upp veginn bakvið sjónvarpið í viðeigandi litum og dregur þig þannig enn dýpra í margmiðlunarefnið.

P5 Perfect Picture Engine örgjörvi 
P5 örgjörvinn notar stafræna bestun til þess að auka myndgæði myndefnis um allt að 50%. Niðurstöðurnar eru dýpri svartir litir, skýrari hvítir og meira lifandi, náttúrulegir litir.

HDR (High Dynamic Range)
HDR eykur birtuskil myndarinnar umtalsvert. Það þýðir að munur milli birtustiga er greinilegri og litir eru líflegri og náttúrulegri.

Dolby hljóð og mynd 
Dolby færir þér kvikmyndahúsaupplifunina beint heim í stofu með bæði Dolby Vision og Dolby Atmos. Dolby Vision framkallar meira lifandi og enn náttúrulegri liti á meðan að Dolby Atmos umlykur þig í hljóði sem hreinlega dregur þig beint inn í myndefnið. 

Android stýrikerfi
Stýrikerfi sjónvarpsins er Android TV. Þú færð greiðan aðgang að alls kyns snjallforritum (e. apps), þar á meðal Sjónvarpi Símans, beint í gegnum sjónvarpið og einnig uppástungum byggt á þínum Google aðgangi. Með þessum uppástungum er líklegra að meiri tími fari í að njóta skemmtunarinnar frekar en að leita hennar, hvort sem um ræðir kvikmyndir, myndbönd, tónlist, leikir og margt fleira.

Leikjaupplifun
Sjónvarpið er útbúið tveimur HDMI 2.1 tengjum og 120 Hz endurnýjunartíðni sem gerir tækið einstaklega vel til þess fallið að spila tölvuleikina.

Fjölrýmishljóð með DTS Play-Fi
DTS Play-Fi gerir þér kleift að tengja Philips sjónvarpið við samhæfða hátalara á heimilinu. Með þessari tækni gætir þú skroppið inn í eldhús án þess að missa af neinu, eða spilað tónlist sem heyrist í hverju herbergi.

Uppsetning
Við bjóðum upp á mikið úrval af veggfestingum sem geta hjálpað þér að finna það sem hentar þér og þínu heimili. Fótur fylgir sjónvarpinu.

Snúrur og fylgihlutir
Ef þú ætlar að tengja sjónvarpið við afruglara, leikjatölvu eða heimabíó þarf að passa að réttu snúrurnar eru til staðar. Þú finnur hljóð- og myndsnúrur í ELKO.

Eiginleikar
- Þriggja hliða Ambilight lýsing
- Google og Alexa raddstýring

Eiginleikar
Sjónvörp
Framleiðandi
Philips
Litur
Svartur
Orkuflokkur (A til G)
F
Orkunotkun á 1000 klst. (kWh)
129
Orkunotkun þegar tækið er í reiðuham (W)
0,3
Skjágerð
LED
Skjástærð (″)
75
Upplausn
4K UHD (2160p)
Upplausn í pixlum
3840 x 2160
Endurnýjunartíðni (Hz)
120 Hz
Skjástærð (cm)
189,3
Gerð LED lýsingar
Baklýsing
Flatur eða Boginn skjár
Flatur
Myndvinnsluörgjörvi
P5 Perfect Picture Engine
Birtuskil
Dolby Vision
Viðbragðstími (ms)
9
Stýrikerfi
Android
Innbyggður netvafri
Styrkur hátalara
2 x 10W
Surround hljóð
Dolby Atmos
Bluetooth
Bluetooth útgáfa
5.0
Wi-Fi stuðningur
Wi-Fi staðall
802.11ac
LAN tengi
1
HDMI 2.0 tengi
2
HDMI 2.1 tengi
2
HDMI tengi (samtals)
4
Digital Optical
1
Tengi fyrir heyrnartól
USB tengi
2
Gervihnattamóttakari
DVB
C,T,T2,S,S2
Fylgihlutir í kassa
Borðstandur, fjarstýring, rafmagnssnúra
Framleiðsluland
Pólland
Stærð (HxBxD)
103,18 x 167,05 x 37,68 cm
Stærð án stands (HxBxD)
96,88 x 167,05 x 8,41 cm
VESA veggfestingarstaðall
300 x 300
Þyngd (kg)
32.9
Þyngd án stands (kg)
32.3
Strikamerki
8718863034170
Samanburður