Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Roborock S8 MaxV Ultra ryksuguvélmenni - Svart
Roborock S8 MaxV Ultra ryksuguvélmennið sér um heimilið fyrir þig með mörgum snjöllum eiginleikum eins og Adaptive Mapping tækni sem sér til þess að ryksugan reikni út bestu leiðina til þess að fara um húsið þitt eða íbúð til að hámarka nýtni ryksugunnar. Með ryksugunni fylgir Roborock Auto-Empty Dock sem tæmir og hleður vélmennið.
Ryksugar og moppar
Roborock S8 MaxV Ultra bæði ryksugar og moppar gólfin. Roborock S8 Pro Ultra er með HyperForce sogkerfi sem veitir 10.000 PA sogkraft.
Dual Roller burstar
Roborock S8 MaxV Ultra kemur nú með Dual Roller burstum sem tryggja enn dýpri hreinsun, jafnvel án moppunnar. Þeir koma einnig í veg fyrir flækju og stíflu. Ef gólfið þitt er fullt af gæludýrahárum eða miklu magni af óhreinindum mun S8 MaxV Ultra hreinsa það upp á skilvirkan hátt.
Aðlagar sig að teppum
Vélmennið áttar sig sjálfkrafa á því að sé á teppi og stillir sogkraftinn í samræmi við það. Auk þess lyftist moppan sjálfkrafa þannig að hún sé ekki notuð á teppi.
Hljóðbylgjutækni með VibraRise 3.0
Ryksugan er með VibraRise 3.0 hljóðbylgjutækni sem moppar betur óhreinindi. Ryksugan moppar betur við 3000 snúninga á mínútu. Með þvoanlegri síu og moppu gefur þeim betri endingu og með 350 ml vatnstanki nær Roborock S8 MaxV Ultra að moppa allt gólfið.
Ultrasonic skynjari
Með Ultrasonic skynjaranum nær Roborock S8 MaxV Ultra strax að gera greinarmun á milli teppa og annara gólfefna. Ef hún nemur teppi lyftir hún moppunni til að vernda teppið og einnig á leiðinni aftur í dokkuna.
PreciSense LiDAR leiðarstýring
PreciSense LiDAR kerfið skannar umhverfið og notar jöfnur til að átta sig á umhverfinu betur. Ryksugan gerir greinarmun á húsgögnum, teppum, veggjum, hornum og fleira í umhverfinu. Roborock býr til kort af heimilinu þínu og lærir að vinna betur með umhverfi sitt í hvert sinn.
Tímastilling og dagskrá
Búðu til dagskrá og tímastilltu hvenær og á hvaða degi ryksugan á sjálfvirkt að þrífa heimilið.
Roborock Auto-Empty Dock
Með Roborock S8 MaxV Ultra fylgir hentug dokka sem tæmir rykhólf og hleður vélmennið. Hreinsunarstöðin vinnur í allt að 7 vikur áður en þarf að þrífa hana. Stöðin fyllir sjálfkrafa á vatnstankinn í vélmenninu og þurrkar og þrífur ryksuguvélmennið eftir moppun.
Endurhlaðanleg rafhlaða
Roborock S8 MaxV Ultra er með 5200 mAh Li-ion rafhlöðu sem getur unnið í allt að 180 mínútur á fullri hleðslu. Með ryksugunni fylgir hleðslustöð sem ryksugan tengir sig sjálf við eftir þrif að hverju sinni. Ef rafhlaðan er að klárast í miðju kerfi þá fer ryksugan í hleðslustöðina og klárar svo verkið þegar ryksugan er nægilega hlaðin fyrir verkið. Hleðslustöðin hleður 30% hraðar en áður.
Roborock snjallforrit
Vertu með fulla stjórn á ryksuguvélmenninu með því að nota Roborock snjallforritið. Hægt er að nota snjallforritið með snjallsíma eða spjaldtölvu og senda skipanir hvort sem þú ert heima eða í vinnunni.