Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snúrur og rafmagn

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Samsung 32" The Frame QLED sjónvarp

QE32LS03TCUXXC
Listaverk þegar það er ekki í notkun, hágæða QLED sjónvarp þegar kveikt er á því. Samsung 32" The Frame FHD QLED snjallsjónvarp er einstakt sjónvarp með sérstæðri hönnun, Dolby hljóði, nákvæmri baklýsingu og Quantum HDR tækni. Glæsileg myndgæði og sérstaklega fallegt í útliti.
FHD QLED snjallsjónvarp
Quantum HDR
Art Mode listaverkastilling
Tizen stýrikerfi
100% color volume
Þessi vara er hætt í sölu og kemur ekki aftur
Upplýsingar

2020 útfærsla af vinsælu Samsung The Frame sjónvarpstækjunum.

Hvað er það?
Ljósmynd, málverk og snjallsjónvarp, allt í einu tæki.

Hver er tilgangurinn?
Yfirleitt er sjónvarp staðsett þannig að það er sá hlutur í herberginu sem fangar hvað mesta athygli. Minimalískt útlit gerir The Frame kleift að passa snyrtilega í innréttuð rými, betur en venjulegt sjónvarp myndi gera. Svo má náttúrulega ekki gleyma að þetta er vandaðasti og flottasti stafræni myndaramminn á markaðnum.

Málverk þegar þú slekkur á sjónvarpsdagskránni.
The Frame hefur þá sérstöðu að þegar ekki er verið að horfa á sjónvarpsefni í því fer það í “Art Mode”. Þannig má segja að þegar “slökkt” er á sjónvarpinu þá þjónar það öðrum tilgangi, sem ljósmynd eða málverk. Birtan er skrúfuð umtalsvert niður til að baklýsingin sjáist ekki og eyðir sjónvarpið aðeins brotabroti af því rafmagni sem þarf til að nota tækið sem sjónvarp. Þess má geta að það er birtuskynjari í tækinu sem ákvarðar birtustigið á myndinni ísamræmi við aðstæður.

Það er um þrjá liti af römmum að velja og eru þeir seldir sér. Litirnir eru ljós eða dökkur viður ásamt hvítum. The Frame eitt og sér kemur úr gráum málmi sem rammarnir festast á með segli. Mjög einfalt og þægilegt að skipta um ramma.

Í The Frame fylgja forvaldar myndir í myndasafninu Samsung Collection. Ef þar er ekki að finna það verk sem þú hefur í huga geturðu farið inn á Art Store og keypt þér það verk sem þig langar í. Ef þú vilt nota eigin myndir geturðu niðurhalað þeim úr síma í gegnum smáforrit eða hreinlega með USB lykli.

Hvað fleira þarf ég að vita?
Skjárinn í The Frame er vandaður. Það er engin blæðing eða þess háttar gallar því það myndi auðvitað vera hræðilegt ef þú notar sjónvarpið sem málverk.

QLED tækni
Quantum Dot er nanóagna sía sem gerir það að verkum að myndin lítur jafn vel út frá öllum sjónarhornum. QLED tækin henta betur við bjartari aðstæður. Þau eru því t.d. frábær til að horfa á fótboltaleiki um miðjan dag. Þó að sólin skíni skært, þá helst myndin skýr og björt á QLED tæki. Skarpari línur og bjartari litir en nokkru sinni áður.

MiraCast
Miracast notar WiFi Direct svo að tenging við WiFi net er óþarfi. Þú getur tengt annan WiFi búnað við sjónvarpið, eins og td snjallsíma eða spjaldtölvu og birt efnið úr því í sjónvarpinu.

Tizen
Tizen snjallkerfið er hannað til að gefa þér á auðveldan hátt aðgang að uppáhaldsefninu í Samsung sjónvarpinu. Uppáhalds tónlistin, myndirnar, seríur og samfélagsmiðlar með nokkrum smellum á fjarstýringuna. Þú getur svo bætt við forritum (e. apps) til að betrum bæta Tizen.

HDR (High Dynamic Range)
HDR tækni tryggir að sá litur sem er dekkstur er svartur og hvítur litur er bjartur. Þú færð náttúrulegri liti með fleirri litum og litbrigðum. HDR tækni færir upplifun úr sjónvarpinu nær raunveruleikanum.

Ambient stilling +
Umhverfisstillingin umbreytir sjónvarpinu þínu í listaverk þegar ekki er verið að horfa á það. Veldur úr allskonar skrautlegum- eða persónulegum myndum og upplýsingar um veður og fréttir. Notaðu snjallsíman þinn eða fjarstýringuna með raddstýringu og streymdu tónlist í gegnum sjónvarpið.

Uppsetning
Ertu ekki viss hvar á að setja nýja sjónvarpið? Við eigum mikið úrval af veggfestingum sem geta hjálpað þér að finna það sem hentar þér og þínu heimili. Fótur fylgir sjónvarpinu.

Snúrur og fylgihlutir
Ef þú ætlar að tengja sjónvarpið við afruglara, leikjatölvu eða heimabíó þarf að passa að réttu snúrurnar eru til staðar. Þú finnur hljóð- og myndsnúrur í ELKO.

Eiginleikar
Sjónvörp
Framleiðandi
Samsung
Litur
Svartur
Orkuflokkur (A til G)
G
EPREL skráningarnúmer
464811
Orkunotkun á 1000 klst. (kWh)
33
Skjágerð
QLED
Skjástærð (″)
32
Upplausn
Full HD (1080p)
Upplausn í pixlum
1920 x 1080
Endurnýjunartíðni (Hz)
60 Hz
Gerð LED lýsingar
Kantlýsing
Flatur eða Boginn skjár
Flatur
Myndvinnsluörgjörvi
Hyper Real
Birtuskil
HDR
Stýrikerfi
Tizen
Innbyggður netvafri
Styrkur hátalara
2 x 10 W
Bluetooth
Bluetooth útgáfa
4.2
Wi-Fi stuðningur
Wi-Fi staðall
Wi-Fi 5 (802.11ac)
HDMI útgáfa
2.0
HDMI 2.0 tengi
2
Digital Optical
1
Tengi fyrir heyrnartól
Nei
USB tengi
2
DVB
C,T,T2,S2
EcoVadis vottun
Silfur
Framleiðsluland
Ungverjaland
Stærð (HxBxD)
45,20 x 72,44 x 14,30 cm
Stærð án stands (HxBxD)
41,94 x 72,44 x 2,47 cm
Þyngd (kg)
5.4
Þyngd án stands (kg)
5.3
Strikamerki
8806092218505
Samanburður