Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Samsung 32" ViewFinity S7 tölvuskjár - Hvítur
LS32D701EAUXENUppselt










Samsung 32" ViewFinity S7 tölvuskjár - Hvítur
LS32D701EAUXENVA skjár
32" VA skjár með 4K 2160p upplausn sem tryggir meiri sjónvídd svo að mynd helst skýr hvaðan sem litið er á skjáinn og einnig helst myndin skýr þó mikil birta sé í herberginu. VA skjáir eru á heildina litið með meiri birtuskil samanborið við IPS skjái sem gefur myndinni meiri dýpt.
4K/UHD upplausn
4K/UHD upplausn (3840x2160) þýðir fjórum sinnum fleiri pixlar en í Full HD sjónvarpi (1920x1080) auk UHD uppskölunar á Full HD eða HD Ready efni. Upplausn segir til um hve margir pixlar komast fyrir í mynd. Einn pixill sýnir einn lit að hverju sinni og í sameiningu framkalla pixlarnir mynd á skjáinn. Með fleiri pixlum eykst gæði myndarinnar og smáatriði verða greinilegri.
HDR (High Dynamic Range)
HDR eykur birtuskil myndarinnar umtalsvert. Það þýðir að munur milli birtustiga er greinilegri og litir eru líflegri og náttúrulegri.
Minna álag á augun
Skjárinn er TUV vottaður með Intelligent Eye Care. Skjárinn minnkar því álag á augun með því að aðlaga sig að umhverfi sínu og stilla til bæði birtu og liti sjálfkrafa. Einnig er hægt að stilla á Eye Saver Mode sem verndar augun fyrir bláljósi.
Auto Source Switch
Ef þú tengir tæki við skjáinn finnur skjárinn sjálfvirkt hvaða tengi er í notkun og stillir sig inn á það tengi sem sparar þér að þurfa að leita að réttri stillingu.
Stillanlegur
Hægt er að stilla hvernig skjárinn snýr, hvernig hann hallar og einnig er hægt að veggfesta hann með VESA 100 x 100 veggfestingu.