Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Samsung 55" Q77D QLED sjónvarp (2024)
TQ55Q77DBTXXC




Samsung 55" Q77D QLED sjónvarp (2024)
TQ55Q77DBTXXC
Samsung 55" Q77D QLED sjónvarp (2024)
Upplifðu frábær myndgæði með Samsung 55" Q77D 4K QLED snjallsjónvarpinu. Quantum Dot tæknin ásamt Quantum Processor 4K og 100% Color Volume tryggja fallegar myndir og þú getur streymt myndefni með Tizen stýrikerfinu. Motion Xcelerator Turbo+, AMD FreeSync Premium Pro og fleiri leikjaeiginleikar leiða þig til sigurs.
QLED tækni
Quantum Dot er nanóagna sía sem gerir það að verkum að myndin lítur jafn vel út frá öllum sjónarhornum. QLED tækin henta betur við bjartari aðstæður. Þau eru því t.d. frábær til að horfa á fótboltaleiki um miðjan dag. Þó að sólin skíni skært, þá helst myndin skýr og björt á QLED tæki.
Dual LED tækni
Horfðu á myndefni eins og framleiðendur þess ætluðu með Dual LED tækni sem aðlagar litblæ sem dregur þig dýpra inn í myndina.
4K/UHD upplausn
4K/UHD upplausn (3840x2160) þýðir fjórum sinnum fleiri pixlar en í Full HD sjónvarpi (1920x1080) auk UHD uppskölunar á Full HD eða HD Ready efni. Upplausn segir til um hve margir pixlar komast fyrir í mynd. Einn pixill sýnir einn lit að hverju sinni og í sameiningu framkalla pixlarnir mynd á skjáinn. Með fleiri pixlum eykst gæði myndarinnar og smáatriði verða greinilegri.
Quantum Processor 4K örgjörvi
Quantum Processor 4K er öflugur örgjörvi frá Samsung sem sér til þess að keyra allt myndefni í bestu mögulegu gæðum. Örgjörvinn er fær um að skala flest myndefni upp í 4K upplausn til þess að gefa þér frábæra sjónvarpsupplifun.
Ultimate UHD Dimming
Ultimate UHD Dimming tækni frá Samsung hagræðir litum og birtuskilum til að búa til skarpari mynd. Tæknin skiptir skjánum niður í hundruði mismunandi svæði sem sjónvarpið greinir svo vandlega til að hámarka myndgæði í hverju svæði.
Tizen stýrikerfi
Tizen snjallkerfið er fjölhæft, fljótt og notendavænt. Tizen veitir þér mörg mismunandi snjallforrit (e. apps), hannað til að einfalda aðgengi að uppáhalds efninu í Samsung sjónvarpinu þínu. Uppáhalds tónlistin, myndirnar, seríur og samfélagsmiðlar eru fáanleg með nokkrum smellum á fjarstýringunni.
Fyrir leiki
Uppfærðu leikinn og fáðu mjúkar hreyfingar með Motion Xceleration Turbo+ tækni ásamt AMD FreeSync Premium Pro sem hámarka flæði mynda í rauntíma og styðja 120 Hz endurnýjunartíðni. Með Auto Low Latency Mode kveikir sjónvarpið sjálfkrafa á leikjaham til að minnka tafir milli sjónvarps og leikjatölvu. HDR Gaming Interest Group bætir HDR stillingar svo þú missir ekki af neinum smátriðum og bætir birtuskil.