Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Samsung 65" DU8575 LED sjónvarp (2024)
Njóttu þess að spila, horfa og slaka á með Samsung 65" DU8575 4K LED sjónvarpi. Ný Smart Hub tækni þýðir að það er auðveldara að nálgast afþreyingu og þökk sé Crystal Processor 4K örgjörva er myndin skýr, nákvæm og glæsileg. Myndefni verður ekki eins hreyft og óskýrt þar sem Motion Xcelerator veitir stöðugri og skarpari mynd úr tækinu og fjarstýringin er með sólarsellum sem hægt er að hlaða hana með.
Crystal Processor 4K
Háhraða Crystal Processor 4K gefur þér 4K gæði svo þú getur notið hvers smáatriðis, fágaðra lita og 4K Ultra HD upplausn með góðum birtuskilum.
4K/UHD upplausn með Dynamic Crystal Color
4K/UHD upplausn (3840x2160pix) þýðir fjórum sinnum fleiri pixlar en í Full HD sjónvarpi (1920x1080) auk UHD uppskölunar á Full HD eða HD Ready efni. Upplausn segir til um hve margir pixlar komast fyrir í mynd. Einn pixill sýnir einn lit hverju sinni og saman verður til mynd. Með fleiri pixlum eykst gæði myndarinnar og smáatriði verða greinilegri. Dynamic Crystal Color færir myndgæðin á hærra plan með fosfór tækni sem eykur litabrigði tækisins.
HDR 10+ (High Dynamic Range)
HDR 10+ eykur skerpu myndarinnar umtalsvert. Það þýðir að munur milli birtustiga er greinilegri og litir eru líflegri og náttúrulegri.
Tizen
Tizen snjallkerfið, fyrir nettengingu og tengingu við netforrit. Hannað til að einfalda aðgengi að uppáhalds efninu í Samsung sjónvarpinu þínu. Uppáhalds tónlistin, myndirnar, seríur og samfélagsmiðlar eru fáanleg með nokkrum smellum á fjarstýringunni.
Multiview
Skiptu skjá sjónvarpsins í tvennt og speglaðu t.d símann þinn við hliðina á sjónvarpsmyndinni.
Leikjasjónvarp
Með Auto Low Latency Mode kveikir sjónvarpið sjálfkrafa á leikjaham til að stytta viðbragðstíma og bæta leikjaupplifun. Motion Xceleration tækni gerir mynd skýrari og nákvæmari með því að draga verulega úr afskerpingu eða móðu þegar myndin er á mikilli hreyfingu.
AirSlim hönnun
Sjónvarpið er einstaklega mjótt. Það þýðir að það leggst vel upp að veggjum og er fyrirferðaminna og stílhreinna þar sem því er komið fyrir.