Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Samsung 65" Signage QB65C upplýsingaskjár
LH65QBCEBGCXEN




Samsung 65" Signage QB65C upplýsingaskjár
LH65QBCEBGCXEN
Samsung 65" Signage QB65C upplýsingaskjár
Samsung Signage 65" QBC upplýsingaskjárinn er hannaður fyrir hámarksáreiðanleika og framúrskarandi myndgæði. Með 4K UHD upplausn og Dynamic Crystal Color tækni býður skjárinn upp á skarpa mynd og breitt litasvið, sem tryggir að myndin sé birt með ótrúlegri nákvæmni. Skjárinn hentar vel fyrir atvinnuumhverfi, þar sem hann er gerður fyrir allt að 16 klukkutíma notkun á dag, 7 daga vikunnar. Hann styður Tizen 7.0 stýrikerfið fyrir þægilega innhaldsskráningu og býður upp á þráðlausa tengimöguleika eins og WiFi og Bluetooth.
4K/UHD upplausn með Dynamic Crystal Color
4K/UHD upplausn (3840x2160) þýðir fjórum sinnum fleiri pixlar en í Full HD skjá (1920x1080) auk UHD uppskölunar á Full HD eða HD Ready efni. Upplausn segir til um hve margir pixlar komast fyrir í mynd. Einn pixill sýnir einn lit hverju sinni og saman verður til mynd. Með fleiri pixlum eykst gæði myndarinnar og smáatriði verða greinilegri. Dynamic Crystal Color færir myndgæðin á hærra plan með fosfór tækni sem eykur litabrigði tækisins.
Intelligent UHD uppskölun
Samsung Crystal örgjörvi 4K uppskölunartækni bætir HD og Full HD myndefni og færir það nær UHD upplausn, eykur birtuskil og skerpir mynd og texta til að gera smáatriði í mynd greinilegri.
Hannað fyrir notkun í rekstri
Skjárinn er sérstilltur og hannaður fyrir allt að 16 klukkutíma notkun á dag, 7 daga vikunnar. Þetta gerir skjáinn tilvalinn til notkunar í búðum, á skrifstofum og í öðrum fyrirtækjarekstri.
Hönnun
Ofurþunnur og stílhreinn rammi sem er hannaður til að virka bæði í láréttur og lóðréttur án þess að það skapi ósamræmd bil milli ramma og veggsins. VESA veggfestingarskrúfgangurinn er stilltur þannig upp að bæði dreifing á þyngd sé rétt og festing sé örugg. Þannig er hægt að snúa skjá án þess að það skapist óæskilegur halli. Skjárinn endurkastar litlu ljósi svo hægt sé að sjá vel á skjá frá öllum sjónarhornum.
Tizen stýrikerfi
Samsung Smart Signage Platform er keyrt á Tizen stýrikerfinu sem er notendavænt og öruggt. Skjárinn er með Cisco viðurkenningu til notkunar í fjarfundum.
Atvinnustillingar
Innbyggðar atvinnustillingar eru í skjánum. Director Mode hentar fullkomlega við myndvinnslu og spítalar geta notað skjáinn með DICOM herminum til að líkja eftir t.d. röntgenmyndir þar sem skjárinn mætir gráskalastöðlum DICOM.
Þráðlaus tenging
WiFi og Bluetooth tenging er í skjánum svo óþarfi er að hafa hann snúrutengdan fyrir ýmsar aðgerðir sem auðveldar notkun.