Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snúrur og rafmagn

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Samsung Galaxy Book3 360 i5/8/512 13.3" fartölva

NP730QFGKA4SE
Intel Evo-vottaða Samsung Galaxy Book3 360 13,3" 2-í-1 fartölvan er létt og nett tölva hönnuð fyrir hönnuði. Hún er með öflugum 13. kynslóðar Intel örgjörva, FHD AMOLED snertiskjá og rafhlöðu sem endist allan daginn.
360° FHD AMOLED snertiskjár
Intel Core i5-1340P örgjörvi
8 GB LPDDR4X RAM, 512 GB SSD
Allt að 20 klst rafhlöðuending
Wi-Fi 6, Bluetooth 5.1
Þessi vara er hætt í sölu og kemur ekki aftur
Upplýsingar

Samsung Galaxy Book3 Pro 360 13,3" 2-í-1 fartölvan er handhæg og öflug vél með frábærum snertiskjá. Tölvan er knúin af 13. kynslóðar Intel i5 örgjörva ásamt 8 GB LPDDR4X vinnsluminni sem veitir þér næga frammistöðu í skilvirka fjölverkavinnslu og kröfuhörð verkefni. Geymdu öll mikilvægu gögnin þín á 512 GB M.2 NVMe SSD drifinu, vafraðu á netinu og farðu yfir verkefni á fallegum 13,3" AMOLED skjá.

Örgjörvi
12 kjarna Intel Core i5 örgjörvinn úr Raptor Lake seríunni tryggir hágæða frammistöðu. Hann er byggður á endurhannaðri 10nm Intel 7 ferlum sem tryggir hraðari vinnslu og minni orkunotkun. Hann er frábær í fjölverkavinnslu eða streymi án hiks né tafa. Örgjörvinn getur farið í 4,6 GHz Turbo Mode og hann er studdur af 8 GB hröðu LPDDR4X vinnsluminni fyrir hispurslausa frammistöðu í kröfuhörðum forritum.

Intel Iris Xe skjástýring
Intel Tiger Lake 10 nm SuperFin hönnun veitir röska myndvinnslu þrátt fyrir litla stærð. Innbyggða Intel Iris Xe skjástýringin gerir þér kleift að gera meira en tölvur í svipaðri stærð leyfa. Hvort sem það er að horfa á myndbönd, vinna við grafíska hönnun, myndþýða efni eða spila tölvuleiki þá heldur skjástýringin sínu en á sama tíma sparar orkunotkun og lengir því rafhlöðuendinguna.

Skjár
13,3" AMOLED skjárinn þakinn gleri er með 16:9 skjáhlutföll og birtir fallegar myndir í Full HDupplausn og 400 nit birtustig sem tryggja frábær myndgæði. Skjárinn uppfyllir einnig kröfur HDR500 staðalsins og þekur 120% DCI-P3 litrófsins. AMOLED tæknin tryggir djúpa svarta liti, lifandi liti og breið sjónarhorn.

Geymslupláss
512 GB M.2 NVMe PCIe SSD sem tryggir að tölvan er fljót að kveikja á sér, ræsa stýrikerfinu og bætir hraðann á gagnaflutningi.

Rafhlaða
Tölvan er útbúin stórri 61,1 Wh Li-ion rafhlöðu sem endist í allt að 20 klukkustundir í notkun.

Fingrafaralesari
Innbyggði fingrafaralesarinn veitir þér aukið öryggi.

Tengimöguleikar
- 1x Thunderbolt 4
- 1x USB-A 3.2 Gen1
- 1x USB-C 3.2 Gen1
- Wi-Fi 6 (802.11ax), Bluetooth 5.1
- MicroSDX minniskortalesari
- HDMI tengi
- 3,5 mm sambyggt heyrnartóla- og hljóðnematengi

Aðrir eiginleikar
- Windows 11 Home 64-bit
- Innbyggð 1080p Full HD vefmyndavél
- 360° snertiskjár
- Baklýst lyklaborð

 
Eiginleikar
Fartölvur
Framleiðandi
Samsung
Framleiðslunúmer
NP730QFG-KA1SE
Hentar fyrir
Skrifstofu
Rafhlöðuending (klst)
20
Tæknilegar upplýsingar um rafhlöðu
61,1 Wh
Tegund rafhlöðu
Lithium-ion
Örgjörvi
Intel Core i5
Tækniupplýsingar um örgjörva
1340P
Hraði örgjörva (GHz)
1,9
Hámarkshraði örgjörva (GHz)
4,6
Fjöldi kjarna (Core)
12
CPU Cache (MB)
12
Geymslurými (GB)
512
Tegund geymslupláss
M.2 NVMe PCIe SSD
Gerð vinnsluminnis
LPDDR4X
Vinnsluminni (GB)
8
Hraði vinnsluminnis (MHz)
4267
Vinnsluminni raufar
0
Skjágerð
AMOLED
Skjástærð (″)
13,3
Upplausn í pixlum
1920 x 1080
Endurnýjunartíðni (Hz)
60 Hz
Skjástýring
Intel Iris Xe Graphics
Stýrikerfi
Windows 11 Home
Bluetooth
Bluetooth útgáfa
5.1
Gerð netkorts
Þráðlaust
Þráðlaust netkort
Wi-Fi 6 (802.11ax)
HDMI tengi (samtals)
1
USB 3.x tengi
1
USB-C tengi
1
Minniskortalesari
MicroSDXC
Tengi fyrir heyrnartól/hljóðnema
1
Thunderbolt 4 tengi
1
Lyklaborð
Baklýst
Íslenskir stafir á lyklaborði
Nei, hægt að fá límmiða
Vefmyndavél
1080p
Stærð (HxBxD)
1,29 x 30,4 x 20,2 cm
Þyngd (kg)
1.16
Strikamerki
8806094919103
Snertiskjár
Samanburður