Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Samsung Galaxy Buds FE - Svört
Láttu mig vita
Skráðu þig inn til að fá tilkynningu þegar þessi vara er komin aftur á lager.
Samsung Galaxy Buds FE eru fullkomlega þráðlaus heyrnartól sem eru einstaklega þægileg og veita nýja sýn á uppáhalds tónlistina þína. Galaxy Buds FE eru með ANC hljóðeingangrun (e. Active Noise Cancellation), Bluetooth 5.2 tengingu og Auto Switch tækni sem skiptir sjálfkrafa yfir á símann þegar þú ert tengdur við annað tæki þegar þú færð símtal og svo til baka þegar símtalið er búið.
Virk hljóðeinangrun
Virka hljóðeinangrunin dempar utanaðkomandi hljóð. Þetta þýðir að þú þarft ekki að hlusta á hávaða frá fjölmennri götu eða hávaðasömu umhverfi þegar þú þarft að einbeita þér eða vilt njóta tónlistarinnar.
Hljómgæði
Sökktu þér í tónlista þína með Galaxy Buds FE. Djúpur bassi, skýr hærri tíðni og yfirhöfuð góð hljóðblöndun veitir ótrúleg hljómgæði.
Skýr samtöl
Heyrðu vel í öðrum og leyfðu öðrum að heyra vel í þér með sérstakri hljóðnematækni sem skynjar röddina þína og síar út óþarfa umhverfishljóð og læti fyrir betri símtöl.
Ambient Sound Mode
Stundum þarf maður að heyra í umhverfi sínu og með Ambient Sound Mode þarft þú ekki að pása tónlistina eða taka heyrnartólin úr eyrunum þínum.
Bluetooth 5.2
Bluetooth tækni tryggir fullkomin hljómgæði þráðlaust. Einfalt mál að para saman heyrnartólin við hljómtæki og snjalltæki sem eru með Bluetooth tengingu.
Þægileg
Létt, fyrirferðalítil og þægileg hönnun sem hentar öllum eyrnarstærðum svo þú getur notið þess að hlusta á uppáhalds tónlistina þína í göngutúrnum, vinnunni eða á ferðalagi.
Rafhlöðuending
Heyrnartólin eru með allt að 6 klukkustunda spilun plús 21 klukkustundir aukalega ef hleðsluhylkið er notað þegar kveikt er á hljóðeinangruninni (e.ANC). Samtals 27 tíma spilunartími. Þegar slökkt er á hljóðeinangruninni spila heyrnartólin í 8,5 klukkustundir eða 30 klst með hleðsluhylkinu.