Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Samsung Galaxy Buds2 Pro þráðlaus heyrnartól - Grá

SMR510NZAAEUB
Samsung Galaxy Buds2 Pro þráðlausu heyrnartólin veita hágæða 24-bita HiFi hljóm með ANC hljóðeinangrun. Heyrnartólin eru með IPX7 vatnsvörn, Bluetooth 5.3 tengingu og allt að 8 + 29 klst rafhlöðuendingu.
ANC hljóðeinangrun
Ambient Mode, Dolby Head Tracking
Bluetooth 5.3
8 + 29 klst rafhlöðuending
44.995 kr.
Upplýsingar

Samsung Galaxy Buds2 Pro þráðlausu heyrnartólin taka hlustunina upp í nýjar hæðir. Heyrnartólin eru útbúin 24-bita HiFi hljóm, ANC hljóðeinangrun (e. Active Noise Cancellation), Bluetooth 5.3 tengingu og þægilegri hönnun sem er 15% minni en forveri heyrnartólanna.

Snjöll hljóðeinangrun 
Virka hljóðeinangrunin sker út óþarfa umhverfishljóð og gerir þér kleift að njóta þess sem þú vilt heyra. Mögulegt er að minnka kraft einangrunarinnar ef þú vilt ekki einangra þig alveg frá heiminum í kringum þig. Intelligent Conversation Mode gefur þér kost á því að heyra vel í þeim sem eru í kringum þig.

Hljómgæði
Galaxy Buds2 Pro eru sérstaklega hönnuð fyrir bæði tónlist og kvikmyndir. Heyrnartólin eru með tvöfalt hátalarakerfi, þar sem 10 mm hátalari sér um að veita þér djúpan og áhrifaríkan bassa og 5,3 mm hátalari veitir þér skýran og fallegan hljóm. 24-bita HiFi hljómgæði veita þér sanna stúdíó upplifun.

Ný vídd í hljóði
Með 360 Audio fylgja heyrnartólin hreyfingum höfuðsins og veita þér persónulegri upplifun sem hreinlega umlykur þig.

Hönnun
Heyrnartólin eru allt að 15% minni en forveri þeirra sem gerir þau enn léttari og þægilegri í amstri dagsins svo þú getir notið þess að hlusta á uppáhalds tónlistina í göngutúrnum, vinnunni eða á ferðalaginu.

Bluetooth 5.3
Bluetooth tæknin tryggir fullkomin hljómgæði, þráðlaust. Einfalt mál er að tengja saman heyrnartólin við snjalltæki sem styðja Bluetooth tengingar. Auto Switch tækni einfaldar þér að skipta á milli tækja.

Rafhlöðuending
Heyrnartólin eru hönnuð til þess að endast út daginn. Með kveikt á ANC hljóðeinangrun duga heyrnartólin í allt að 5 + 18 klukkustundir en með slökkt á ANC hljóðeinangruninni eru heyrnartólin með allt að 8 + 29 klukkustunda rafhlöðuendingu. 

 

 

Eiginleikar
Heyrnartól
Strikamerki
8806094512663
Framleiðandi
Samsung
Hentar fyrir
Líkamsrækt
Litur
Grár
Rafhlöðuending (klst)
8 + 29
Stærð hátalara (Driver)
10 mm
ANC hljóðeinangrun
Þráðlaus
Bluetooth
Bluetooth útgáfa
5.3
Tengi
USB-C
Vörn (IP staðall)
X7
Stærð (HxBxD)
21,6 x 19,9 x 18,7 mm
Þyngd (g)
5.5
Greiðsludreifing
6 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 6 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður