Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Samsung Galaxy Ring stærð 9 - Gylltur
Samsung Galaxy Ring snjallhringurinn sameinar tísku og tækni. Hringurinn er með þrjá innbyggða skynjara sem mæla hjartslátt, súrefnismettun og svefnvenjur, ásamt því að mæla æfingar á einfaldan máta. Tengdu hringinn við önnur galaxy tæki og Samsung Health smáforritið og fáðu góða yfirsýn yfir heilsuna þína og æfingar. Rafhlaðan endist í allt að 7 daga.
Hönnun
Hringurinn er úr léttu títaníum tryggir hámarks þægindi til lengri tíma og íhvolf hönnun lágmarkar rispur við daglega notkun.
Mælingar
Hringurinn mælir hjartslátt, súrefnismettun, svefnmynstur og tíðahring. Með því að tengja hringinn við snjallsíma færðu Energy Score einkunn og síminn gefur ráð til að bæta heilsu þína. Hringurinn er með IP68 ryk- og vatnsvörn svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að fara með hringinn í sund.
Galaxy vistkerfið
Nýttu hringinn til fulls með því að tengja hann við Galaxy vistkerfið. Hringurinn tengist hispurslaust við Galaxy snjallúr til að fá enn nákvæmari innsýn í heilsumælingar. Einnig er hægt að tengja hringinn við Galaxy snjallsíma og stjórna honum við einfaldri handarhreyfingu: Með því að klípa tvisvar sinnum getur þú tekið mynd í símanum þínum eða slökkt á vekjaraklukku.
Stærðir
Hringurinn kemur í 9 mismunandi stærðum og mikilvægt er að finna réttu stærðina fyrir þig. Mælt er með að byrja á því að kaupa prufusettið til að finna hvaða stærð hentar þér best. Fullur skilaréttur gildir á prufusettinu svo auðvelt er að skila því og láta það ganga upp í kaupin á Galaxy Ring.
Rafhlöðuending
Samsung Galaxy Ring snjallhringurinn endist í allt að 7 daga á einni hleðslu og hringnum fylgir einnig hentugt hleðslubox með LED ljósum til að sýna stöðu á hleðslu. Ath að rafhlöðuendingin er breytileg eftir stærð hringsins.
Finndu rétta stærð með Ring mátunarsettinu
Þú færð Mátunarsett fyrir Ring í ELKO Lindum og í vefverslun ELKO. Settið inniheldur níu prufuhringi í stærðum 5 til 13, sem gerir þér kleift að prófa og finna nákvæmlega réttu stærðina sem hentar þér best, hvort sem þú notar hringinn allan daginn eða við ákveðin tilefni. Hringina ætti að prófa í a.m.k. sólarhring til að tryggja þægindi við daglega notkun.
Í kassanum
- Galaxy Ring snjallhringur
- Hleðslubox
- USB hleðslusnúra