Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snúrur og rafmagn

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Samsung Galaxy Watch Ultra 47mm LTE snjallúr - Títaníum Silfur

SML705F47LTESIL
Galaxy Watch Ultra er öflugasta úrið frá Samsung og er tilbúið í hvaða aðstæður sem er, sama hversu erfiðar, þökk sé títaníum umgjörð og skjá úr safír gleri. Úrið fylgist með heilsunni þinni, allt frá svefnmælingum að hjartslátts- og blóðþrýstingsmælingum. Þökk sé nýja Galaxy AI ert þú núna með einkaþjálfara á úlnliðnum.
Allt að 100 klst rafhlöðuending
Galaxy AI
BioActiveSensor 2
47 mm títaníum umgjörð
10 ATM vatnsvörn
Bluetooth 5.3, Wi-Fi, Dual GPS, LTE, NFC
119.995 kr.
Sjá staðsetningu í verslun
Upplýsingar

Samsung Galaxy Watch Ultra er bæði fyrir hið kröfuharðasta íþróttafólk og þá sem vilja öflugt og endingargott úr. Úrið er útbúið 47 mm skjá úr safír gleri sem er auðvelt að sjá sama hversu bjart er úti. Exynos W1000 og 564 mAh rafhlaða veitir úrinu allt að 100 klukkustunda rafhlöðuendingu (48 klukkustundir með GPS). Þökk sé nýjum flýtihnapp getur þú tekið tímann, byrjað og endað æfingar, kveikt á vasaljósinu eða látið hann virkja næstum hvaða aðgerð sem þér sýnist. Ef þú lendir síðan í vandræðum þá er úrið með öfluga 85 dB neyðarsírenu sem heyrist í 180 metra radíus.

Bestaðu æfingarnar með Galaxy AI
Skynjarar úrsins og Galaxy AI vinna saman til að læra á líkamann þinn þegar þú notar úrið. Hjartslátturinn þinn og meðaltal hans við hvíld er stanslaust mældur svo að þú getur fengið nákvæma greiningu á æfingunum þínum. Með GPX gögnum getur þú borið æfingar saman og fengið tillögur um sambærilega slóða sem gætu hentað þér.

  • Þolpróf hvenær sem er þökk sé Galaxy AI. Með háþróuðum skynjurum úrsins getur þú tekið þolpróf hvenær sem er með því að hlaupa eða hjóla. Það tekur aðeins tíu mínútur!
  • Sigraðu sjálfan þig og fáðu hvatningu með því að bera saman núverandi æfingu við fyrri hraða þinn. Þegar þú hleypur eða hjólar sömu leið og áður gerir Galaxy AI þér kleift að fylgjast með fyrri hraða í rauntíma. Nýttu einnig persónuleg púlssvæði til þess að bæta þig á þeim hraða sem þú vilt. Skynjararnir á úrinu og Galaxy AI fylgjast með hjartslættinum og öndun til þess að meta heilsuna þína á mismunandi æfingum og erfiðleikastigum.
  • Galaxy AI fylgist með heilsunni og gefur þér upplýsingar um æfingar, hvíld og svefn. Galaxy AI greinir svefninn þinn og býr til sérhannaðar tillögur til að bæta svefninn, sem leiðir af sér betri æfingar. Ef að hjartslátturinn þinn er óreglulegur er þér bent á að taka ECG mælingu með úrinu til að rannsaka málið frekar.
  • Svaraðu sjálfvirkt með Galaxy AI. Úrið lærir hvernig þú vilt svara og veitir þér möguleika á að gera það sjálfkrafa, fullkomið þegar þú ert í miðri æfingu.

Exynos W1000 örgjörvi
5 kjarna Exynos örgjörvinn knýr Galaxy AI og bætir skilvirkni um 30% miðað við fyrra Galaxy Watch og lætur úrið virka betur og endast lengur.

Nýr BioActiveSensor2
Hjartslátturinn þinn er mældur hárnákvæmt þökk sé nýjum BioActiveSensor2.

Dual GPS fyrir nákvæmari mælingar
Galaxy Watch Ultra er með stórbættan GPS þökk sé tvöföldum GNSS (L1+L5) örgjörvum og háþróuðu algrími sem bætir staðsetningartækni í þéttbyggð. Það bætir einnig mælingu á staðsetningu þegar úrið er notað í krefjandi umhverfi eins og skógum eða fjöllum. 

Rafhlaðan endist allt að 100 klukkustundir
Í mikilvægari keppni er rafhlaðan ekki það sem þú vilt einbeita þér að. Galaxy Watch Ultra endist einstaklega lengi og í orkusparnaðarham endist rafhlaðan allt að 100 klukkustundir. Þegar á æfingu stendur endist það í allt að 48 klukkustundir. 

Hönnun og ending
Galaxy Watch Ultra er hannað fyrir erfiðar aðstæður með IPX8 og MIL-STD 810H einkunn, svo hvort sem þú ert í skógi, á fjöllum eða í sjó þarft þú ekki að hafa áhyggjur. Títaníum umgjörð og safír gler ver úrið gegn höggum og rispum og það þolir hitastig frá -22 til +50°C án nokkurra vandamála ásamt lofthæð frá -500 til 9000 metra.

Fylgihlutir

  • Þráðlaust hleðslutæki
  • Ól
  • Leiðbeiningar
Eiginleikar
Snjallúr
Strikamerki
8806095683324
Framleiðandi
Samsung
SIM
eSIM
Litur
Svartur
Rafhlaða (mAh)
564
Geymslurými (GB)
32
Skjástærð (″)
1,9
Bluetooth
Bluetooth útgáfa
5.3
Vörn (IP staðall)
X8
Púlsmælir þráðlaus
Vatnsvörn
10 ATM
Stærð (HxBxD)
47,4 x 47,4 x 12,1
Þyngd (g)
94
Snertiskjár
LTE
Greiðsludreifing
12 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 12 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður