Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Samsung HW-Q995D hljóðstöng með bassaboxi - Svört
HWQ995DXE








Samsung HW-Q995D hljóðstöng með bassaboxi - Svört
HWQ995DXE
Samsung HW-Q995D hljóðstöng
Hreint út sagt ótrúlegur hljómur finnst í Q995D hljóðstönginni frá Samsung. SpaceFit Sound Pro tryggir að hljóðið þitt sé alltaf fínstillt fyrir herbergið þitt en bassaboxið gefur djúpan og ríkan bassa. Tveir bakhátalarar, Dolby Atmos og DTS:X umlykja þig í hljómgæðum.
11.1.4 rásir
Ellefu aðalrásir ásamt bassaboxi og tveimur aftengjanlegum bakhátölurum umlykja þig ótrúlegum hljómi sem dreifist um allt heimilið.
Bakhátalarar
Með stönginni fylgja tveir bakhátalarar með 4.0.2 rásum. Hátalararnir vísa beint áfram, upp í loft og út í veggi til þess að tryggja dýpri og betur umlykjandi hljóm.
Dolby Atmos og DTS:X stuðningur
Dolby Atmos hringóma hljómsniðið opnar nýjan heim með þrívíddar hljóðtækni sem fyllir stofuna af lifandi tónlist.
SpaceFit Sound Pro
Hljóðstöngin greinir herbergið og fínstillir sjálfkrafa hljóðið svo þú getir upplifað hljóð sem er fullkomlega aðlagað umhverfi þínu.
4K Pass-through
HDMI tengingin í hljóðstönginni er með allt að 4K Ultra HD stuðning fyrir myndstreymi og spilar 4K myndefni án vandræða í 4K sjónvarpið eða myndvarpan, svo engin gæði týnast á leiðinni. Einnig er hægt að nota hljóðstöngina með HDR10+.
HDMI e-ARC (Enhanced Audio Return Channel)
e-ARC gerir það að verkum að þú þarft ekki að tengja margar snúrur við sjónvarpið. Þessi tækni sendir hljóðmerki frá sjónvarpinu í tækið í gegnum sömu HDMI snúru sem er notuð til að senda hljóð og mynd í sjónvarpið í betri gæðum en fyrri ARC tegundir.
Q-Symphony
Q-symphony tæknin samhæfir hljóðstöngina og hátalarana í sjónvarpinu til þess að framkalla enn víðari og betri hljóm.
Endalaus skemmtun
Þú verður aldrei uppiskroppa með frábært efni til að horfa á eða hlusta með Q995D hljóðstönginni. Tengdu tækin þín með Bluetooth, Optical tenginu eða veldu úr miklu magni af efni með Chromecast og Apple AirPlay.