Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Samsung kæli- og frystiskápur - Svartur RB34C705DB1EF
Samsung kæli- og frystiskápurinn er snjöll lausn til að geyma mat á hagnýtan hátt. Hann hefur nokkur nytsamleg hólf og fjölbreytt úrval af snjöllum eiginleikum eins og SpaceMax hönnun, NoFrost sem veitir auðvelt viðhald og All-Around kælingu sem tryggir stöðugt hitastig.
Kæliskápurinn
Kæliskápurinn er með 227 lítra rúmmál, þremur gler hillum, flöskuhillu og gegnsæjum ávaxta og grænmetisskúffum, til að gefa þér góða yfirsýn yfir matinn.
Frystirinn
Frystirinn er með 114 lítra rúmmál og getur fryst allt að 8 kg á dag. Þrjár skúffur gefa þér gott pláss fyrir matinn.
NoFrost
Sjálfvirk afhríming, gerir það að verkum að þú þarft aldrei að afhríma skápinn þar sem hrím myndast ekki innan á hann.
SpaceMax tækni
Þessi tækni gerir ísskápinn rúmgóðan með því að þynna veggina án þess að það komi niður á einangruninni.
OptimalFresh+
Hægt er að skipta skúffunum í tvennt með því að stilla mismunandi hitastig fyrir mismunandi tegundir af mat til að halda þeim ferskum lengur.
HumidityFresh+
Hægt er að stilla rakastigið í skúffunum svo ávextir og grænmeti endast mun lengur.
All-Around Cooling kerfi
Kælikerfi sem sér um hverja hillu fyrir sig og tryggir þannig gott loftflæði í skápnum og heldur matnum lengur ferskum.
Digital Inverter tækni
Pressan í skápnum er stjórnuð með stafrænni tækni sem minnkar álagið á pressuna eftir þörfum sem sparar orku, lengir endingartíma og minnkar hljóð.
Hitastýring
Inni í tækinu finnur þú hagnýtan skjá sem gerir þér kleift að stilla hitastigið einfaldlega.
SmartThings og AI
Með því að virkja gervigreindar orkusparnaðarstillingu í SmartThings smáforritinu geturðu dregið úr orkunotkun ísskápsins um allt að 15%. Gervigreindin greinir notkunarmynstur kæliskápsins, reiknar úr orkunotkun og hámarkar hraða og virkni pressunnar.