Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Samsung þvottavél WW11DG5B25AEEE - Hvít
Samsung WW11DG5B25AEEE er háþróuð þvottavél sem sameinar nýjustu tækni til að tryggja hágæða þvott með lágmarks orkunotkun. Hún er með 11 kg þvottagetu, sem gerir hana kjörna fyrir stór heimili.
Helstu eiginleikar:
- EcoBubble tækni: Þvotturinn er þveginn á lægra hitastigi án þess að það hafi áhrif á útkomuna með því að blása lofti í vatnið og þvottaefnið svo að það freyði. Bæði orkusparandi og fer betur með fötin.
- Digital Inverter: Veitir orkusparnað og minnkar hávaða við þvott.
- Hygiene Steam: Drepur allt að 99,9% baktería og ofnæmisvalda.
- SmartThings: Stjórnun í gegnum snjallforrit fyrir þægilegan aðgang.
Þvottavélin hefur hraðvirka stillingu fyrir fljótlegan þvott og hljóðláta vinnu, sem tryggir orkunýtingu án þess að skerða gæði.
Uppsetning
Hægt er að nota gúmmífætur undir vélina til að styðja betur við hana og gera hana enn hljóðlátari. Einnig er hægt að kaupa sérstakan stöflunarrekka ef óskað er eftir því að setja aðra vél ofaná. Hafa ber í huga að báðar vélarnar þurfa að vera í sömu stærð ef þær eiga staflast ofan á hvor aðra.
Viðhald
Hafa ber í huga að allar þvottavélar þurfa reglulega að vera hreinsaðar. Heitt og rakamikið umhverfi getur valdið myglu og vondri lykt sem enginn vill í þvottinn. Hægt er að hreinsa tromluna á einfaldan hátt með því að stilla á 85-90°C kerfi með tómri vél og örlitlu þvottaefni.
ATH! Þarf að hafa það í huga að reglulega þarf að þrífa tromluna sem kemur í veg fyrir vonda lykt og myglu. Nóg er að sótthreinsa tromluna með því að stilla vélina tóma á 85-90 gráða þvott.