Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
Shark FlexStyle 5-in-1 hármótunartæki - Limited Edition
Með einum snúning breytist Shark FlexStyle úr öflugri hárþurrku í 5-í-1 hármótunartæki. Breyttu rútínu þinni og sýndu lit.
5 leiðir til að móta hárið: Krulla, þurrka, slétta, móta og lyfta hárinu.
FrizzFighter haus
Laðar hárið sjálfkrafa að sér, minnkar úfið hár og sléttir flakkandi lokka og gefur þér skínandi slétt hár. Þú notar þennan haus á þurrt hár til að fá glansandi áferð án þess að hafa áhyggjur af hitaskemmdum. Hausinn notar Coanda tækni með því að nota loftkraft sem dregur hárið að sér og dregur úr úfnu hári og lokkum.
Krullur
Breyttu því hvernig þú krullar. Coanda tæknin vefur hárinu sjálfkrafa í kringum hármótunartækið með því að nota loftkraft sem dregur hárið að sér og krullar það um leið. Horfðu á töfrana gerast þegar þú setur hárið nálægt FlexStyle og það krullast á nokkrum sekúndum. Limited Edition kemur með tveim krullu hausum. 32 mm sem er fullkominn fyrir sítt hár og gerir stórar krullur og 24 mm sem virkar best á stutt hár og býr til þéttari krullur.
Sléttunarbursti
Burstinn þurrkar, greiðir og sléttir hárið þitt samtímis.
Kringlóttur bursti sem gefur lyftingu
Burstinn þurrkar, greiðir og gefur hárinu meiri lyftingu svo það verði ekki jafn flatt og um leið gefur hárinu meira líf.
Öryggi
Segðu bless við mikinn hita - Shark FlexStyle mælir hita 1.000 sinnum á sekúndu og tryggir stöðugt lofthitastig og engar hitaskemmdir. Þurrkaðu varlega og stílaðu hárið með 3 hita- og hraðastillingum, sem veita þér fulla stjórn.
Hraðvirkur
Þó að FlexStyle sé léttur og nettur, er hann fullur af krafti og skilar frábærum niðurstöðum hratt. Fullkomið til að flýta fyrir morgunrútínu þinni. Náðu mestum raka úr hárinu í hárþurrkuham og bættu síðan haus við til að móta hárið að vild.
Hárgreiðslustofa heima hjá þér
Festu hárgreiðsluna þína með Cool Shot stillingunni en kælingin hjálpar við að festa hárgreiðsluna svo hún endist lengur, jafnvel allan daginn. Það er handhæg hárgreiðslubók í kassanum, full af ráðum, brellum og innblæstri – svo þú getir stílað með stæl.
Létt
Shark FlexStyle er tæplega 700 g að þyngd og er afar létt og þægileg í notkun. Fyrirferðarlítil hönnun gerir hana að fullkomnum ferðafélaga.