Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
SteelSeries Arctis Gamebuds leikjaheyrnartól - Svört
SSGBUDSB







SteelSeries Arctis Gamebuds leikjaheyrnartól - Svört
SSGBUDSBLitur: Svartur
SteelSeries Arctis GameBuds eru háþróuð heyrnartól sem henta jafnt fyrir leikjaspilun sem daglega notkun. Þau sameina frábær hljómgæði, þægilega hönnun og fjölbreytta tengimöguleika í einu stílhreinu tæki.
Frábær hljómgæði og rýmisupplifun
Heyrnartólin eru búin öflugum neodym hátölurum sem skila skýrum og djúpum hljómi. Með Sonar Surround og Tempest 3D hljóðtækni færðu raunverulega rýmisupplifun sem gerir þér kleift að greina hljóð úr öllum áttum – hvort sem þú ert að spila leik, horfa á kvikmynd eða hlusta á tónlist.
Virk hljóðeinangrun og hrein samskipti
Fjórir hljóðnemar sjá um virka hljóðeinangrun (ANC) sem útilokar truflandi umhverfishljóð. Innbyggði hljóðneminn tryggir skýra rödd í samskiptum við liðsfélaga eða í símtölum, án þess að þurfa að nota utanaðkomandi búnað.
Langur rafhlöðuending og hraðhleðsla
- Allt að 10 klst. spilun á einni hleðslu
- Hleðsluhulstur veitir allt að 40 klst. heildarendingu
- Hraðhleðsla: 15 mínútna hleðsla gefur allt að 3 klst. spilun
Þægileg og endingargóð hönnun
Arctis GameBuds eru með IP55 vottun. Létt og þægileg in-ear hönnun sem kemur með mismunandi stærðum af sílikoneyrnatöppum.
- Bluetooth 5.3 og 2,4 GHz þráðlaus tenging
- Samhæf við PC, PlayStation 5, Nintendo Switch, Android og iOS
- USB-C og þráðlaus Qi hleðsla
Snjöll forrit og stillingar
Með SteelSeries Arctis Companion snjallforritinu getur þú sérsniðið hljóðið að þínum þörfum með yfir 100 forstilltum EQ stillingum, þar á meðal stillingar frá þekktum leikjateymum eins og T1 og FaZe.
Í kassanum:
- SteelSeries Arctis GameBuds heyrnartól
- Hleðsluhulstur
- USB-C hleðslusnúra
- USB-C í USB-A millistykki
- S / M / L sílikon eyrnatappar