Stór heimilistæki
Heimilistæki
Hljóð og mynd
Símar og úr
Tölvur
Gaming
Snúrur og rafmagn
Snyrting og heilsa
Snjallheimili
Áhugamál og farartæki
Unaðsvörur
TCL 65" QLED850 sjónvarp
TCL 65" QLED850 4K LED snjallsjónvarpið er með nútímalega og rammalausa hönnun. Sjónvarpið er með Quantum Dot tækni, 100 Hz Motion Clarity Pro og HDR multi-format með miljarði mismunandi liti og tóna. Til þess að veita einstaka kvikmyndaupplifun er QLED850 með Dolby Atmos og Onkyo 2.1 hátalara. Sjónvarpið er með Android stýrikerfi og innbyggðan Google Assistant.
QLED tækni
Quantum Dot er nanóagna sía sem gerir það að verkum að myndin lítur jafn vel út frá öllum sjónarhornum. QLED tækin henta betur við bjartari aðstæður. Þau eru því t.d. frábær til að horfa á fótboltaleiki um miðjan dag. Þó að sólin skíni skært, þá helst myndin skýr og björt á QLED tæki. Skarpari línur og bjartari litir en nokkru sinni áður.
4K HDR (High Dynamic Range) Pro Picture
Með hjálp endurnýjunartíðninnar sér HDR um að dekkri hlutar myndarinnar verði enn dekkri og bjartari hlutarnir bjartari. Þú færð því skarpari mynd og meiri litbrigði.
Dolby mynd og hljómur
Fáðu kvikmyndahúsið í stofuna með Dolby Vision IQ og Dolby Atmos. Dolby Vision IQ framkallar litríka liti sem færa myndina nær raunveruleikanum. Dolby Atmos býr til þrívíddar hljóm sem umlykur þig og setur þig í miðju hasarsins.
Android stýrikerfi
Stýrikerfi sjónvarpsins er Android TV. Þú færð greiðan aðgang að alls kyns netforritum (e.apps), þar á meðal Sjónvarpi Símans, beint í gegnum sjónvarpið og einnig uppástungum byggt á þínum aðgang inn á Google Play. Með þessum uppástungum er líklegra að meiri tími fari í að njóta skemmtunarinnar frekar en að leita hennar, hvort sem um ræðir kvikmyndir, myndbönd, tónlist, leikir og margt fleira.
Raddstýring
Raddstýringin í sjónvarpinu gefur þér meiri tíma til að horfa en að leita. Finndu allt skemmtiefnið og uppáhalds kvikmyndirnar þínar eða þætti í gegnum sjónvarpið eða fáðu aðstoð frá Google Assistant fyrir topp kvikmyndir og þætti.
Game Master Pro
TCL sjónvarpið er með HDMI 2.1 sem gefur möguleika á hraðari endurnýjunartíðni og 4K upplausn með 100/120 ramma á sekúndu.