Stór heimilistæki

Heimilistæki

Hljóð og mynd

Símar og úr

Tölvur

Gaming

Snúrur og rafmagn

Snyrting og heilsa

Snjallheimili

Áhugamál og farartæki

Unaðsvörur

InnskráningKarfaUpplýsingarÓskalisti

Uppgerður iPhone SE 2020 64GB - Svartur (A einkunn)

IPHONESE64GBA001
iPhone SE 2020 snjallsíminn er í fullkominni vasastærð með 4,7" Retina HD snertiskjá og öflugum A13 Bionic örgjörva. Síminn er einnig með 12MP myndavél sem tekur góðar landslags- og svipmyndir auk þess að vera vatns- og rykvarinn.
4,7" Retina HD skjár
A13 Bionic örgjörvi
64
12 MP True Tone flass myndavél
IOS stýrikerfi
IP67 vatns- og rykvörn
Hleðslukló og heyrnartól fylgja ekki með.
34.995 kr.

Láttu mig vita

Skráðu þig inn til að fá tilkynningu þegar þessi vara er komin aftur á lager.

Sjá staðsetningu í verslun
Upplýsingar

iPhone SE 2020 snjallsíminn er í fullkominni vasastærð úr gleri og áli. Síminn er með 4,7" Retina HD snertiskjá og 12 MP bakmyndavél með fjölbreyttum stillingum og LED True Tone flassi. Öflugur A13 Bionic örgjörvi tryggir hraða keyrslu snjallforrita og kröfuharðra leikja.

Vatns- og Rykvörn
Síminn er IP67 sem þýðir að hann er rykvarinn og þolir að fara niður á 1 metra dýpi í 30 mín.

(Athugið að vatnstjón falla þó ekki undir ábyrgð og mælum við sterklega með því að fara varlega með símann nálægt vatni og passa að nota ekki símann í sturtu, baði, sundi eða neðansjávar. IP67 þolprófið er framkvæmt á rannsóknarstofu þar sem síminn er í hvíldarstöðu á 1 metra dýpi í hreinu vatni í 30 mín, allt aðrar aðstæður geta myndast í sturtu þar sem meiri þrýstingur er á vatninu, sundlaugar eru fullar af efnum til að hreinsa vatnið og sjórinn er fullur af salti.) Frekari upplýsingar ásamt góðum leiðbeiningum um hvernig best er að þurrka símann má svo finna á heimasíðu Apple, eða hérna: https://support.apple.com/en-us/HT207043

Retina HD snertiskjár
iPhone SE 2020 er sérhannaður fyrir þá sem vilja létta og netta síma sem passa auðveldlega í vasa. Síminn er með 4,7" Retina HD snertiskjá með 1334 x 750p upplausn og True Tone tækni sem stillir hvíta litinn í skjánum til að fá sem skýrustu mynd þrátt fyrir mikla eða litla birtu. Auk þess er síminn með það sem Apple kallar Haptic Touch, sem þýðir að hann gefur frá sér vægan titring þegar ýtt er á skjáinn eins og um venjulegan takka væri að ræða.

Myndavél
12MP myndavél með f / 1.8 ljósop er staðsett aftan á símanum við hliðina á LED True Tone flassins. Myndavélin er einnig með 5x stafrænan aðdrátt og fleiri fjölbreyttar stillingar. Sérstakur Portrait eiginleiki framkallar svokölluð 'bokeh' áhrif þar sem hægt er að gera bakgrunninn á myndunum óskýran eftir þörfum bæði fyrir og eftir að myndin hefur verið tekin. Annar frábær eiginleiki er Portrait Lightning sem býður upp á 6 sérstök ljósmyndaáhrif sem atvinnuljósmyndarar þekkja vel. Nýji Smart HDR 4 eiginleikinn stillir skerpu og ljós fyrir allt að 4 manneskjur. Viltu taka upp myndbönd? Með QuickTake þarftu einungis að halda upptökutakkanum niðri til að skipta á milli myndatöku og myndbandsupptöku í 4K gæðum með Stereo Sound. Að framan er iPhone SE 2020 með 7 MP myndavél með f / 2.2 ljósop.

Örgjörvi og geymslupláss
Knúinn áfram af sama örgjörva og iPhone 11. A13 Bionic örgjörvinn er með 6 kjarna örgjörva með 2 háhraða örgjörvum og fjórum skilvirkum örgjörvum. Síminn er með 64GB geymslupláss þar sem hægt er að geyma fjöldan allan af ljósmyndum, myndböndum, tónlist og fleira.

Touch ID
iPhone SE 2020 er einnig með Touch ID, fingrafaralesari sem er innbyggður í Home takkann. Hægt er að nota þessa tækni til þess að aflæsa símanum eða borga með Apple Pay.

Aðrir eiginleikar
- Dual SIM (nano-SIM og e-SIM)
- VoLTE fyrir 4G símtöl, VoWi-Fi fyrir WiFi símtöl
- WiFi 6 (802.11ax)
- GPS og GLONASS staðsetningartæki
- Bluetooth 5.0
- NFC fyrir þráðlausar greiðslur
- Stuðningur fyrir þráðlausa hleðslu

Innifalið í pakkningu
- iPhone SE 2020

Eiginleikar
Farsímar
Framleiðandi
Apple
Módel
A2296
Fjöldi SIM korta
1
SIM
Nano-SIM + eSIM
Vörutegund
Snjallsími
Tegund rafhlöðu
Lithium-ion
Rafhlaða (mAh)
1821
Hraði örgjörva (GHz)
2,65
Chipset
Apple A13 Bionic
Vinnsluminni (GB)
4
Skjágerð
LCD
Skjástærð (″)
4,7
Upplausn í pixlum
1334 x 750
Endurnýjunartíðni (Hz)
60 Hz
Birtustig (nit)
625
Stýrikerfi
iOS
Útgáfa stýrikerfis
17
Bluetooth
Bluetooth útgáfa
5.0
Wi-Fi stuðningur
Já, Wi-Fi 6
Wi-Fi staðall
Wi-Fi 6 (802.11ax)
Símkerfi
4G
Útvarp
Nei
Minniskortarauf
Nei
NFC
3,5mm mini-jack tengi
Nei
Corning Gorilla Glass
Staðsetningartækni
GPS,GPRS
Vörn (IP staðall)
67
Aflæsing
Andlitsskanni
Flass
Quad-LED dual-tone flash
Myndbandsupptaka
4K (2160p)
Bakmyndavél 1
12 MP, f/1.8, PDAF, OIS
Sjálfumyndavél 1
7 MP, f/2.2
Hleðslutæki fylgir
Nei
Stærð (HxBxD)
13,84 x 6,73 x 0,73 cm
Þyngd (g)
144
Strikamerki
5713552016782
Snertiskjár
Greiðsludreifing
6 GREIÐSLUR
0 kr.
/ mán
Í 6 mánuði með Pay Léttkaup. 0,0% vextir, 0,0% lántökugjald og 0 kr./greiðslu. Alls 0 kr. ÁHK: 0,0%
Samanburður